Anna Sigríður Einarsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins, mætti til fundarins. Rætt um útibú á Völlum sem gert er ráð fyrir í þriggja ára áætlun og til stendur að opna árið 2010. Rætt um nafn og fl.
Menningar- og ferðamálanefnd
á Vesturgötu 8
Ritari
- Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
0805152 – Bókasafn á Völlum, útibú
Nefndin leggur til að útibúið fái nafnið Ásvallasafn. Nauðsynlegt er að nafngift liggi fyrir svo hægt sé að hefja skráningu bóka á safnið og vinna þannig í haginn fyrir framtíðina.%0DRætt um Landsfund Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræðinga, sem haldinn verður í Hafnarfirði 10.-11. október n.k.
-
0809093 – Bókasafn Hafnarfjarðar, Ársskýrsla 2007
Ársskýrsla lögð fram.
-
0701303 – Tjaldsvæði á Víðistaðatúni
Inga María Magnúsdóttir frá skátafélaginu Hraunbúum mætti til fundarins. Rætt um nýja stöðu tjaldstæðis með tilkomu þjónustuhúss sem reis í sumar.
Ákveðið að hitta forsvarsmenn skáta fljótlega aftur og fara yfir markaðsmál og fleira er lýtur að tjaldstæðinu.
-
0804192 – Fjöldi ferðamanna í Þjónustuver.
Anna Bára Gunnarsdóttir, forstöðumaður Þjónustuvers, mætti til fundarins. Rætt um þátt ferðamanna í Þjónustuveri.
Farið yfir dreifingu á Take a break, merkingar og fleira.
-
0710071 – Jólaþorpið í Hafnarfirði
Greint frá breytingum sem fyrirhugaðar eru þetta árið.
-