Lögð fram drög að Hafnar- og hafnalóðasamningi, sem viðauka við Vatnskaupasamning milli Hafnarfjarðarbæjar og Clacierworld ehf.
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
-
Almenn erindi
-
0806098 – Glacier World ehf, vatnskaup
Hafnarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi drög verði lögð til grundvallar í áframhaldandi viðræðum við Glacierworld ehf.
-
0702340 – Flutningur flotkvíar.
Lagðar fram fundargerðir 38. og 39. verkfunda um flutning flotkvíar ásamt framvinduskýrslu um verkið pr. 30. júní 2008.%0DHafnarstjóri gerði hafnarstjórn grein fyrir stöðu mála.
-
0702364 – 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Ásta María Björnsdóttir formaður afmælisnefndar gerði grein fyrir tillögum afmælisnefndar um viðburði á afmælisárinu.%0DLagði hún fram tillögu um það sem gera þarf í sumar.
Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Halldór Árna Sveinsson um gerð heimildamyndar um sögu hafnarinnar í samræmi við tillögur hans og tilboð.%0DHafnarstjórn samþykkir að leita samvinnu við skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði um staðsetningu og fyrirkomulag fyrir listaverk eftir Gest Þorgrímsson.%0DHafnarstjóra er falið að láta vinna framkvæmda- og kostnaðaráætlun fyrir smíði og uppsetningu listaverks eftir Gest Þorgrímsson
-
0803102 – Fornubúðir 1, fyrirspurn
Lagðar fram umsagnir eftirtalinna nágranna Fornubúða 1 um viðbyggingu við húsið á Fornubúðum 1:%0D- Ocean Direct %0D- Kænan, veitingastofa%0D- Haraldi Jónssyni ehf, eigandi Fornubúða 3.%0DHafnarstjórn óskaði eftir þessum umsögnum á fundi sínum 23. apríl 2008.
Hafnarstjórn samþykkir að tillögurnar verði settar í formlegt skipulagsferli.
-
0805038 – Hafnargjöld
Lagt fram minnisblað frá fundi hafnarstjóra með forsvarmanni Roi-Tinto 26. júní 2008, þar sem m.a. er lýst breytingum á flutningum afurða og aðfanga fyrir álverið í Straumsvík.
Hafnarstjórn samþykkir að málið verði tekið fyrir í væntanlegum viðræðum Hafnarfjarðarhafnar og fulltrúa Rio-Tinto.
-
0807014 – Fenderar á Álgarð í Straumsvík
Lögð fram tillaga að tilkynningu um útboð á „Fenderum“ fyrir Álgarðinn í Straumsvík. Tilkynningin er stíluð fyrir Evrópska efnahagssvæðið.
Hafnarstjórn samþykkir að bjóða út „Fendera“ fyrir Álgarðinn í Straumsvík, í samræmi við framlögð gögn.
-