Anna Bára Gunnarsdóttir, forstöðumaður Þjónustuvers, mætti til fundarins og greindi frá því hversu margir erlendir gestir komu í þjónustuverið árið 2007.
Menningar- og ferðamálanefnd
á Vesturgötu 8
Ritari
- Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
0804192 – Fjöldi ferðamanna í Þjónustuver árið 2007.
Rætt um þátt ferðamála í þjónustuveri.
-
0806095 – Hellisgerði, álfasteinn.
Ásbjörg Una Björnsdóttir, verkefnisstýra, lagði fram til kynningar teikningu af steini þar sem fram kemur fróðleikur um álfa og huldufólk sem fyrirhugað er að koma fyrir í Hellisgerði.
-
0806096 – Jónsmessuhátíð í Hellisgerði
Dagskrá Jónsmessuhátíðar þann 23. júní lögð fram til kynningar.
-
0806097 – Heimasíða Hafnarfjarðarbæjar
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi, mætti til fundarins og fór yfir væntanlega breytingar á heimasíðu bæjarins.
Rætt um hvernig nýta megi heimasíðuna betur til kynningar á ferðaþjónustu bæjarins.
-
0806094 – Hafnarfjarðarleikhúsið, ársreikningur.
Lögð fram álitsgerð Gerðar Guðjónsdóttur, fjármálastjóra, um ársreikning Hafnarfjarðarleikhússins.
Rætt um ársreikning og ársskýrslu. Nefndin óskar eftir að fá starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta leikár, samanber umsögn fjármálastjóra Hafnarfjarðarbæjar.%0D%0D
-