Lögð fram og kynnt skýrsla vegna náms- og kynnisferðar fræðslustjóra með skólastjóra grunnskóla og nokkra starfsmenn Skólaskrifstofu til Oregon.%0D%0D%0D
Fræðsluráð
á Skólaskrifstofu
Ritari
- Magnús Baldursson fræðslustjóri
-
Almenn erindi
-
0805120 – Grunnskólastjórar, náms- og kynnisferð
-
0703028 – Hraunvallaskóli, húsnæðisbreytingar
Lagt fram bréf dags. 28. maí frá skólastjóra Hraunvallaskóla þar sem óskað er eftir breytingum á húsnæði á þriðju hæð í D-álmu skólans (3.áfanga) og lokun á svalir á annarri hæð í sömu álmu.
Fræðsluráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar til framkvæmdaráðs. Fræðsluráð óskar eftir upplýsingum um kostnað á breytingunum.
-
0701391 – Skólaverkefni, samstarfsverkefni Hfj.bæjar, Kópavogsbæjar, Akureyrarbæjar, Jafnréttisstofu, félagsmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar.
Lagður fram samstarfssamningur um þróunarverkefnið „Jafnréttisfræðsla í leikskólum og grunnskólum“%0DSamningurinn er milli: Félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Jafnréttisstofu, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Reykjavíkurborgar, Akureyrarkaupstaðar, Kópavogsbæjar og Mosfellsbæjar og gildir frá 1. apríl 2008 til 1. júní 2009.%0D%0D%0DÁheyrnarfulltrúar vegna grunnskóla viku af fundi %0Dkl. 9:05.
-
0703231 – Framkvæmdaáætlun í barnavernd
Lögð fram lokaútgáfa af framkvæmdaáætlun Hafnarfjarðarbæjar í barnavernd.%0DAthugasemdum skal skilað fyrir 19. júní nk.
-
0805285 – Leikskólinn Arnarberg - aðstoðarleikskólastjóri
Einn umsækjandi er um stöðu aðstoðarleikskólastjóra á Arnarbergi, Björg Helga Geirsdóttir.%0DLeikskólastjóri mælir með ráðnigu Bjargar í stöðuna.%0DSviðsstjóri tekur undir tillögu leikskólastjóra.
Fræðsluráð samþykkir tillögu sviðsstjóra.%0D%0D%0DÁheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi %0Dkl. 9:10.
-
0805279 – Tilnefning í "fagráð tónlistarskóla"
Lagt fram bréf frá Félagi tónlistarskólakennara þar sem óskað er eftir tilnefningu í fagráð tónlistarskóla.
Sviðsstjóra falið að koma með tilnefningu í ráðið.%0D%0D%0DNæsti fundur fræðsluráðs verður miðvikudaginn %0D18. júní kl. 8:15
-