Anna Sigurborg, þjónustu- og þróunarstjóri, mætti til fundarins og kynnti hugmyndir um á útfærslu verksviði þjónustufulltrúa sem sinnir sérstaklega þjónustu gagnvart innflytjendum.
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Ritari
- Anna Jörgensdóttir lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi
-
Almenn erindi
-
0802095 – Þjónustuver, þjónusta við innflytjendur.
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd tekur undir hugmyndirnar.
-
0701205 – Nýbúaútvarp.
Það er mat lýðræðis- og jafnréttisnefndar að það sé mikilvægt fyrir framtíð nýbúaútvarps að Flensborgarskóli, ábyrgðaraðili útsendinga, og Alþjóðahús gangi frá formlegu samkomulagi um starfsemi og rekstur útvarpsins.%0D%0DVakin er athygli á því að í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 er gert ráð fyrir 3 milljónum kr. til verkefnisins.
-
0803133 – Fræðsluátak um fjölmenningu.
Lögð fram skýrsla frá Námsflokkum Hafnarfjarðar vegna fræðsluátaks um fjölmenningu á meðal starfsmanna bæjarins.
-
0802001 – Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun
Lögð fram að nýju drög að framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum en óskað hefur verið eftir umsögn lýðræðis- og jafnréttisnefndar um áætlunina.
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd veitir eftirfarandi umsögn:%0DNefndin lýsir yfir ánægju með framkvæmdaáætlunina en telur þó að ábyrgð sé ekki nægjanlega skilgreind í áætluninni, betur þurfi að skýra aðstoð við fjölskylduna í víðum skilningi og skilgreina þurfi betur árangursmælikvarða.
-