Prófessor Ólafur Guðmundsson óskar með tölvupósti dags. 07.08.2009 eftir að setja upp jarðskjálftamæli í Krýsuvík. Jarðskjálftamælirinn yrði hluti af allt að 30 mæla neti sem nær frá Þingvallasveit í austri og vestur að Reykjanestá. Ætlunin er að reka mælanetið í a.m.k. 2 ár sem hluta af samvinnuverkefni Háskólans í Reykjavík, Uppsalaháskóla í Svíþjóð og MIT í Bandaríkjunum. Málið var á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 12.08.09 og var vísað í umhverfisnefnd/sd21.
Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Ritari
- Berglind Guðmundsdóttir Landslagsarkitekt , Skipulags- og byggingarsviði Hafnarfjarðar
-
Almenn erindi
-
0908042 – Krýsuvík, jarðskálftamælir, uppsetning
<DIV>Umhverfisnefnd / sd 21 tekur jákvætt í erindið að því gefnu að svæðinu verði skilað í viðunandi ástandi að loknum mælingum og að allur frágangur verði til fyrimyndar við uppsetningu. </DIV>
-
0909101 – Krýsuvík, stækkun beitarhólfs fyrir sauðfé
Lögð fram tillaga að stækkun beitarhólfs í Krýsuvík. Tillagan kemur í kjölfar færslu fjárréttarinnar sunnan megin við Suðurstrandaveg.
<DIV>Umhverfisnefnd /sd 21 tekur jákvætt í stækkun beitarhólfsins til vesturs. Nefndin vill þó undirstrika að fjáreigendur stofni með sér fjáreigendafélag og taki þar með þátt í uppgræðslustarfi og viðhaldi réttarinnar. </DIV>
-
0909102 – Trjábæklingur, kynning
Davíð Arnar Stefánsson varaformaður umhverfisnefndar/sd 21 mun kynna trjábækling sem gefin var út á Akureyri. Lagt er til að Hafnarfjarðarbær gefi út svipaðan bækling þar sem merkileg tré í bænum eru skrásett og kortlögð með upplýsingum um tegund, uppruna og sögu.
<DIV>Umhverfisnefnd sd 21 tekur jákvætt í verkefnið og felur staðardagsskráfulltrúa að gera kosnaðarathuganir.</DIV>
-