Lagt fram erindi frá Sigríði Friðriksdóttur þar sem óskað er eftir afnotum af húsi í Hellisgerði. Hugmyndin er að reka þar kaffihús þar sem áhersla verði lögð á sérkenni Hellisgerðis s.s. álfa, gróður og sögu.
Menningar- og ferðamálanefnd
á Vesturgötu 8
Ritari
- Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi

Almenn erindi

0908194 – Rekstur kaffihúss í Hellisgerði

Menningar- og ferðamálanefnd tekur jákvætt í erindið en felur menningar- og ferðamálafulltrúa að auglýsa eftir fleiri áhugasömum um rekstur hússins til að gæta jafnræðis.

0908126 – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Óskað hefur verið eftir upplýsingum frá framkvæmdastjóra hátíðarinnar um hvenær viðburðir myndu eiga sér stað í Bæjarbíói en svör hafa ekki borist.

Lagður fram tölvupóstur dags. 1. sept 2009 frá Hrönn Marinósdóttur, framkvæmdastjóra kvikmyndahátíðarinnar, þar sem fram kemur að ekki geti orðið að dagskrá í Bæjarbíói í ár.

0907142 – Línudanshátíð í Hafnarfirði 30. júlí - 1. ágúst
Lagt fram að nýju erindi um línudanshátíð. Óskað er eftir niðurfellingu á leigu á íþróttahúsi í Hafnarfirði. Erindið er sent öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Viðburðurinn er háður þátttöku erlendra gesta.

Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að kanna grundvöll fyrir því að viðburðurinn fari fram í íþróttahúsinu við Strandgötu 30. júlí – 1. ágúst nk.

0908117 – Hafnarfjarðarleikhúsið, úttekt á samningi
Lagt fram sexmánaða árshlutauppgjör Hafnarfjarðarleikhússins á árinu 2009 ásamt álitsgerð fjármálastjóra bæjarins. Kallað var eftir viðbótargögnum um fjárhag leikhússins vegna ársreiknings 2008.

Farið yfir árshlutauppgjörið og álitsgerðina. Í álitsgerð fjármálastjóra er ítrekað að nauðsynlegt sé að fram komi áætlanir um hvernig staðið verði að fjárhagslegri endurskipulagningu leikhússins m.t.t. núgildandi samnings.