Lagt fram til kynningar áætluð útkoma reksturs hafnarinnar árið 2009.%0D
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri

Almenn erindi

0810280 – Rekstrar- og fjárhagsáætlun hafnarinnar 2009

0812164 – Flotkví VOOV, krafa vegna flutnings.
Formaður greindi frá fundi sínum, Ingvars Viktorssonar og hafnarstjóra með forystumönnum Ístaks hf. um frágang málsins. %0DBjarni Ásgeirsson hrl. mætti til fundarins og gerði hafnarstjórn grein fyrir áliti sínu.

Farið almennt yfir stöðuna í þessu máli.

Samþykkt var að taka það til umræðu síðar.

1003002 – Meintur stuðningur við flotkvíar VOOV.
Hafnarfjarðarhöfn hefur borist erindi Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur tengt kæru Samtaka Iðnaðarins til Samkeppnisstofnunar vegna fyrirhugaðrar þátttöku Vestmannaeyjabæjar í endurreisn skipalyftu Vestmannaeyja, en þar ber Vestmannaeyjabær Hafnarfjarðarhöfn á brýn að greiða niður kostnað við rekstur flotkvía Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., með afsláttum af gjöldum og aðstöðu t.d. rafmagni ofl.

Hafnarstjórn samþykkir að senda bréf til Samkeppnisstofnunar vegna málsins.

1003018 – Sjómannadagurinn 2010
Lagt fram minnisblað hafnarstjóra um Sjómannadaginn 2010.

Hafnarstjórn samþykkir að styðja við bakið á Sjómannafélaginu í Hafnarfirði vegna hátíðrhalda á n.k. sjómannadag og jafnframt var samþykkt að Hafnarfjarðarhöfn taki ekki þátt í kynningarefni Hátíðar Hafsins að þessu sinni.

0912129 – Óseyrarbraut 1b, lóðarumsókn til sameiningar
Tekið fyrir að nýju umsókn Fylkis ehf um lóðina Óseyrarbraut 1b til sameiningar við Óseyrarbraut 1, eftir að bæjarstjórn vísaði málinu aftur til hafnarstjórnar.

Samþykkt að fela hafnarstjóra að vinna málið nánar í samvinnu við skipulags- og byggingafulltrúa.