Lagt fram erindi Landslaga lögfræðistofu f.h. Verktaka Magna ehf varðandi kröfu um verðbætur á óverðbætta verksamninga.
Framkvæmdaráð
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2

Almenn erindi

1001168 – Magni ehf, verðbætur

Framkvæmdaráð vísar málinu til umsagnar lögmanns sviðsins.

0911564 – Undirhlíðar, uppgræðsla
Lagt fram erind Gróður fyrir fólk dags. 23 nóvember 2009 varðandi uppgræðslu í Undirhlíðanámu. Lagt fram minnisblað frá Vatnsveitu Hafnarfjarðar dags. 28. jan 2010.

Framkvæmdaráð óskar eftir umsögn frá Framkvæmdasviði vegna erindisins.

0712004 – Lögreglusamþykktir, reglugerð
Lögð fram drög af Lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjörð dags í nóv 2009. Lagðar fram athugasemdir Framkvæmdasviðs dags í janúar 2010. Erindinu var vísað til sviðsins frá Bæjarráði.

Lagt fram til kynningar.

0702368 – Hamranes/Vellir grunn-, leik- og tónlistarskóli
Niðurstaða starfshóps vegna málsins lögð fram. Einnig lagðar fram umsagnir umsagnaraðila og tillögur tilboðsgjafa. Búið er að kynna málið í fræðsluráði, skipulags- og byggingarráði og umhverfisnefnd.

Framkvæmdarráð tekur undir niðurstöðu starfshóps og með hliðsjón af samkeppnisgögnum, að tillaga Hornsteina sé með samanlagða bestu einkunn. Framkvæmdaráð leggur áherslu á að vinningstillagan gefur ekki beina heimild til samninga og verkið er ekki á fjárhagsáætlun 2010.

1001273 – Hjallabraut 33, eignaskiptasamningur
Lögð fram ósk frá húsfélaginu Hjallabraut 33, vegna gerð eignaskiptasamnings um eignina.

Lagt fram til kynningar.

0709219 – Aðgengi fyrir fatlaða,
Lagt fram erindi frá bæjarstjórn frá 22. desember 2009.

Framkvæmdaráð óskar eftir uppfærðu stöðumati vegna aðgengi fyrir alla.

1001275 – Björgunarsveit Hafnarfjarðar - Húsnæðismál
Farið yfir stöðu mála vegna húsnæðismála hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar.

Framkvæmdaráð felur Framkvæmdasviði að fara yfir viljayfirlýsinguna frá 2006 og leggja fram drög að nýrri viljayfirlýsingu vegna breyttra forsendra.

0906162 – Endurmat eigna
Sigurður Páll gerir grein fyrir stöðu verkefnisins.

Málið kynnt.

0703337 – Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ
Sviðsstjóri gerir grein fyrir stöðu málsins.

Framkvæmdaráð ítrekar að sveitarfélaginu Garðabæ sé sent formlegt erindi um að ljúka þurfi uppgjöri á milli aðila, þar sem málið hefur verið til umfjöllunar í 3 ár.

Fundargerðir

0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lagðar fram verkfundargerðir vegna Félagsaðstöðu nr.57 og 58 og verkfundargerðir vegna Frjálsíþróttahúss nr. 33 og 34.

Lagt fram.