Umhverfis- og framkvæmdaráð

16. nóvember 2011 kl. 08:15

í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2

Fundur 146

Mætt til fundar

  • Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
  • Hörður Þorsteinsson aðalmaður
  • Árni Stefán Jónsson aðalmaður
  • Valdimar Svavarsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður

Á fundinum voru einnig Sigurður Páll Harðarson, Dagur Jónsson, Helga Stefánsdóttir og Sigurður Haraldsson.

Ritari

  • SH/HS

Á fundinum voru einnig Sigurður Páll Harðarson, Dagur Jónsson, Helga Stefánsdóttir og Sigurður Haraldsson.

  1. Almenn erindi

    • 1110290 – Kaldárselsvegur, reiðleið í beygju.

      Lagt fram erindi Reiðvegarnefndar Sörla dags 25. okt 2011. Erindinu var vísað til ráðsins frá Skipulags- og byggingarráði 1. nóvember 2011.

      Erindinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu 2012.

    • 1111061 – Krýsuvík, uppgræðsla Landgræðslu ríkisins

      Lögð fram skýrsla Landgræðslu ríkisins varðandi uppgræðslu í Krýsuvík, áfangaskýrsla 2011 og framkvæmdaáætlun 2012. Jafnframt er lagt fram bréf varðandi ósk ymn styrk til landgræðslu í Krýsuvík 2012.

      Erindinu er vísað til fjárhagsáætlunarvinnu 2012.

    • 1011405 – Frístundabíllinn,samstarf, framlenging

      Lagt fram erindi Hópbíla hf dags. 1. nóv 2011 varðandi framlengingu á samstarfi á vorönn 2012. Erindinu var vísað til ráðisins frá bæjarráði 3. nóv ember 2011.$line$Til fundarins mætir fulltrúi Hópbíla.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og frestar málinu til næst fundar.

    • 1111179 – Umhverfis- og framkvæmdaráð, fjárhagsáætlun 2012

      Lögð fram fyrstu drög að rekstraráætlun og fjárfestingaráætlun 2012.

      Lagt fram.

    • 1111180 – Umhverfis- og framkvæmdaráð, erindisbréf

      Lagt fram til kynningar.

      Lagt fram.

    • SB050584 – Reykjanesbraut , deiliskipulag

      Tekið til umræðu.

      Umhverfis- og framkvæmdarráð óskar eftir svörum frá Vegagerð ríkisins vegna verkframkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar.

    • 1110255 – Vatnasvæðisnefnd, tilnefning fulltrúa

      Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar varðandi að Hafnarfjarðarbær tilnefni fulltrú í nefndina. Vísað til ráðsins frá bæjarráði 3. nóvember 2011.

      Umhverfis- og framkvæmdarráð tilnefnir Dag Jónsson Vatnsveitu Hafnarfjarðar sem fulltrúa bæjarins í nefndinni.

    • 0906213 – Alcan, vatnsgjald árin 2005-2009

      Tekið fyrir að nýju.

      Samningaviðræður við fyrirtækið standa yfir vegna málsins á vegum Bæjarráðs í höndum bæjarstjóra, og ætlar því Umhverfis- og framkvæmdarráð ekki að hafast því neitt frekar í málinu að svo stöddu. Bæjarráð fer með umsýslu málsins.$line$Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins óskar bókað:$line$“Með lögum nr. 112/2007 sem tóku gildi þann 2. Júlí 2007 er Rio Tinto Alcan komið yfir í íslensk skattaumhverfi og greiðir gjöld eins og önnur fyrirtæki á Íslandi. Breytingin tók gildi afturvirkt frá og með 1. Janúar 2005. $line$Vatnsgjald er greiðsla fyrir varanlegan og traustan aðgang að vatni. Vatnsgjald er innheimt af öllum fyrirtækjum skv. Reglugerð nr. 401/2005, 12 gr. Samkvæmt henni er heimilt að innheimta vatnsgjald af öllum fasteignum er vatns geta notið og má gjaldið nema allt að 0.5 hundraðshlutum af fasteignamati.$line$Með vísan í fyrrgreind lög og í samræmi við reglugerðir og starfssvið sitt lagði Vatnsveita Hafnarfjarðar vatnsgjald á fasteignir álversins í Straumsvík fyrir árin 2005, 2006, 2007, 2008 og 2009 á grundvelli laga nr. 32/2004 um Vatnsveitur sveitarfélaga. Gjaldtaka miðað við eldri samning kom til lækkunar en heildarfjárhæð álagningarinnar fyrir þetta fimm ára tímabil nam 66.7 m.kr. með verðbótum. $line$ Þessa fjárhæð greiddi fyrirtækið með fyrirvara um réttmæti og fyrir liggur úrskurður Innanríkisráðuneytisins (stjórnsýslumál nr. 45/2010) þar sem tekið er undir sjónarmið Rio Tinto Alcan um að fyrirtækinu beri ekki að greiða vatnsgjald til Vatnsveitu Hafnarfjarðar.$line$Það fordæmisgildi sem álit ráðuneytisins hugsanlega hefur er áhyggjuefni þeirra sem bera ábyrgð á þessu skylduverkefni sveitarfélaga og mikilvægt er að ekki ríki réttaróvissa um álagningu vatnsgjalds og því er nauðsynlegt að fá úr þessu málið skorið fyrir dómstólum og að til þess verði fengnir færir sérfræðingar á þessu sviði til að gæta hagsmuna sveitarfélagsins.“$line$Bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins, Helga Ingólfsdóttir.

    • 1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.

      Tekið til umræðu.

      Margrét Gauja fór yfir stöðu verkefnisins. Eyjólfur Sæmundsson er formaður starfshópsins. Gert er ráð fyrir að skýrslan verði tilbúin í febrúar 2012.

    • 1101014 – Sorpa bs, fundargerðir 2011

      Lögð fram fundargerð nr. 291

      Lagt fram.

Ábendingagátt