Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 19. október 2011 þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðanefnd vegna vatnasvæðis 4.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir formaður
- Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
- Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
- Valdimar Svavarsson aðalmaður
- Geir Jónsson varamaður
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
1110255 – Vatnasvæðisnefnd, tilnefning fulltrúa
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu í umhverfis- og framkvæmdaráði.
-
1111009 – Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, löggæsla í bæjarfélögum
Lagt fram erindi Lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu dags. 31. október 2011 þar sem boðað er til árlegra funda með fulltrúum þeirra sveitarfélag sem tilheyra lögreglustöð 2 (í Hafnarfirði).
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu hjá fjölskylduþjónustu.
-
1111015 – SSH framtíðarhópur, málefni innflytjenda
Lagðar fram niðurstöður framtíðarhóps SSH um málefni innflytjenda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari skoðun málsins.
-
1111016 – SSH, breytingar á samþykktum
Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sent í tölvupósti 26. október 2011 varðandi breytingar á samþykktum SSH.
Lagt fram til kynningar.
-
1110301 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fjárhagsáætlun 2012
Lögð fram fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fyrir árið 2012. Heilbrigðisnefnd fjallaði um áætlunina á fundi þann 24. október sl. $line$Jafnframt lagðar fram tillögur að gjaldskrám vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits og vegna hundahalds.
Bæjarráð vísar fjárhags- og rekstraráætluninni til skoðunar í fjárhagsáætlunarvinnu 2012.$line$$line$Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögur að gjaldskrám.“
-
1110157 – Geymslusvæði Kapelluhrauni, gatnagerð og gjöld
Lögð fram fyrirspurn Ástvaldar Óskarssonar f.h. Geymslusvæðisins en skipulags- og byggingarráð vísaði fyrirspurninni til bæjarráðs á fundi 18.10. sl.
Lagt fram.
-
1110305 – Óttarsstaðir II, stofnun lögbýlis, umsögn sveitarfélags
Lagt fram erindi Grétu Sörensen sent í tölvupósti 26. október 2011 þar sem óskað er eftir umsögn Hafnarfjarðarbæjar um stofnun lögbýlis að Óttarstöðum II.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar hjá lögmönnum bæjarins.
-
1011405 – Frístundabíllinn,samstarf, framlenging
Lagt fram erindi Frístundabílsins sent í tölvupósti 1. nóvember 2011 þar sem óskað er eftir framlengingu á samstarfi á vorönn 2012.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs sem fer með málefni almenningssamgangna.
-
11023144 – Endurskoðun lóðaverðs, starfshópur
Tekið fyrir að nýju.$line$Tillögur starfshópsins teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarráð tekur undir þau almennu sjónarmið sem sett eru fram í skýrslu lóðaverðshóps. Bæjarráð samþykkir að vísa útfærslu tillagna 1, 2, 9, 11 og 13 til bæjarstjóra. Tillögum 5, 6, 7, 8, 10 og 15 er vísað til skipulags- og byggingarráðs til frekari úrvinnslu. Umhverfis- og framkvæmdaráði er falin markaðssetning atvinnu- og íbúðalóða, samanber tillögu 12 í skýrslunni.$line$$line$Útfærslur hverrar tillögu verði síðan lagðar fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu$line$
-
1104347 – Endurfjármögnun lána
Tekið fyrir að nýju.$line$Fjármálastjóri mætti til fundarins vegna þessa máls.$line$Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.
Til kynningar.
-
1110190 – Bæjarráð, vettvangsferðir
Í fundarlok er áætluð vettvangsferð í Bókasafn Hafnarfjarðar.
Í lok fundar fór bæjarráð í heimsókn í Bókasafn Hafnarfjarðar.
Umsóknir
-
1110068 – Klukkuvellir 20-26, lóðarumsókn
Tekið fyrir að nýju.$line$Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við umsækjanda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við umsækjanda á grundvelli umsóknarinnar.
Styrkir
-
1110335 – Flensborgarskóli, starfsbraut, styrkbeiðni
Lagt fram erindi fjáröflunarnefndar starfsbrautar Flensborgarskóla þar sem óskað er eftir styrk vegna námsferðar til Noregs næsta vor og mun skólinn einnig taka á móti nemendum frá Noregi.
Bæjarráð samþykkir styrk fyrir nemendur með sambærilegum hætti og aðra nemendahópa sem takist af fjárveitingu bæjarráðs til styrkveitinga, bókhaldslið 21-815.
Fundargerðir
-
1101013 – Strætó bs, fundargerðir 2011
Lögð fram fundargerð frá Strætó bs frá 18.10.2011$line$Í 1. lið fundargerðarinnar er fjallað um fjárhagsáætlun 2012.
Lagt fram til kynningar.$line$
-
1110017F – Hafnarstjórn - 1400
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 21.10. sl.
Lagt fram til kynningar.
-