Atli Þórsson, rekstrarstjóri fjölskylduþjónustu, mætti til fundarins og gerði grein fyrir endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2011. $line$Jafnframt lögð fram tímaáætlun vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2012.$line$Boðað er til vinnufundar í ráðinu miðvikudaginn 9. nóv. nk. kl. 18:00.
Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir aðalmaður
- Geir Jónsson aðalmaður
- Elín Sigríður Óladóttir aðalmaður
- Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri
Ritari
- Margrét L. Jónsdóttir ritari fjölskylduráðs
-
Kynning
-
1110179 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs 2011, endurskoðun
-
1110333 – Fatlað fólk, reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa
Til fundarins mætti Hrönn Hilmarsdóttir og kynnti drög að nýjum reglum.
Fjölskylduráð samþykkir drögin með fyrirvara í samræmi við umræður á fundinum.
Almenn erindi
-
1111011 – Félag eldri borgara, mótmæli
Lagður fram tölvupóstur frá Félagi eldri borgara í Hafnarfirði, bókun frá stjórnarfundi félagsins sem haldinn var 19. okt. sl., þar sem harðlega er mótmælt þeirri ákvörðun velferðarráðherra að loka St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Fjölskylduráð tekur undir áhyggjur Félags eldri borgara og ítrekar bókun bæjarstjórnar frá 12. okt. sl.
-
1009213 – Fatlaðir, málefni, yfirfærsla
Lögð fram skýrsla, unnin af Félagsvísindastofnun H.Í. fyrir Velferðarráðuneytið; Flutningur þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga – okt. 2011, kortlagning á stöðu þjónustu fyrir flutning.$line$Einnig lögð fram kynning dr. Guðbjargar Jónsdóttur og dr. Rannveigar Traustadóttur; Staða málefna fatlaðs fólks fyrir flutning frá ríki til sveitarfélaga.$line$$line$$line$
-
1110016 – Atvinnumál ungs fólks
Lagt fram minnisblað velferðarráðherra til ríkisstjórnarinnar, dags. 28.10.2011, varðandi stofnun atvinnutorgs í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun, til að þjónusta ungt fólk án atvinnu.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi erindi. Sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu og ganga frá samningi.$line$
-
0701245 – Atvinnuástandið
Lögð fram skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið í sept. 2011.
-
0912025 – Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði
Lagðar fram tölur um atvinnuleysi í Hafnarfirði sl. 13 mánuði.
Fjölskylduráð óskar eftir frekari greiningu á fjölda atvinnulausra eftir lengd atvinnuleysis.
-
1110326 – Foreldraráð Hafnarfjarðar, áheyrnarfulltrúi í fjölskylduráði
Lagt fram erindi frá Foreldraráði Hafnarfjarðar, dags. 27. okt. sl., ósk um áheyrnarfulltrúa á fundum Fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
Vísað til íþrótta- og tómstundanefndar.
Fundargerðir
-
1110021F – Íþrótta- og tómstundanefnd - 141
Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 26. okt. sl.
Fjölskylduráð staðfestir fundargerðina.
-