Kynnt dagskrá fjármálaráðstefnu Sambands ísl. sveitarfélaga sem haldin verður 13. og 14. október nk.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir formaður
- Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
- Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
- Valdimar Svavarsson aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
1110020 – Fjármálaráðstefna Sambands ísl. sveitarfélaga 2011
Lagt fram til kynningar.
-
1110027 – Kvennafrídagurinn 25. október, hvatning
Lagt fram bréf Sambands ísl. sveitarfélaga dags. 29. september 2011 þar sem hvatt er til að sveitarstjórnir standi fyrir fundum vikuna 24. – 29. október nk. um stöðu og aðgerðir í jafnréttismálum kynjanna í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
-
0701351 – Alcan Holdings Switzerland Ltd, samningur
Lagt fram afrit af bréf Rio Tinto Alcan dags. 26. september 2011 til ríkstjórnar Íslands þar sem tilkynnt er sú ákvörðun Alcan Holdings Switzerland Limited að framlengja samning aðila um 10 ár í samræmi við 49. grein hans.
Lagt fram til kynningar.
-
1103239 – Árshlutauppgjör 2011
Fjármálastjóri mætti á fundinn og kynnti rekstrarniðurstöðu janúar – ágúst 2011.
Til kynningar.
-
1109295 – Ásland 3, frágangur
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa í Áslandi 3 dags. 19. september 2011 varðandi frágang hverfisins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tryggja að íbúum berist svör við erindinu.
-
1009045 – Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags. 21. september sl. með upplýsingum sem nefndin hefur unnið úr rafrænum skilum sveitarfélaganna á ársreikningum þeirra fyrir árið 2010.
Lagt fram til kynningar.
-
11023144 – Endurskoðun lóðaverðs, starfshópur
Lögð fram lokaskýrsla starfshóps um lóðaverð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í lausar íbúðahúsalóðir í þegar byggðum hverfum.
-
1109280 – Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, ársfundur 2011
Lagt fram fundarboð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 19. september 2011 þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins þann 12. október nk.
Lagt fram.
-
1104347 – Endurfjármögnun lána
Gerð grein fyrir stöðunni.
Til upplýsinga.$line$Bæljarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:$line$“Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að hafin verði vinna við að gera raunhæfa áætlun fyrir Hafnarfjarðarbæ til að mæta skuldbindingum sínum og á sama tíma uppfylla skyldur sveitafélagsins um lögboðna þjónustu til íbúanna. $line$Færustu sérfræðingar yrðu fengnir til gera fjárhagslega endurskipulagningu á heildarskuldbindingum Hafnarfjarðarbæjar og hefja vinnu við að endursemja við kröfuhafa um uppgjör skulda sveitarfélagsins. Í slíku uppgjöri yrði gerð heildstæð áætlun um raunhæfa greiðslugetu bæjarfélagsins, bæði í fjárhagslegu og lagalegu tiliti en mikilvægt er að lánadrottnum verði ekki mismunað í slíku uppgjöri. $line$Auk fjárhagsskoðunar fari fram lögfræðileg skoðun á öllum þeim möguleikum sem bærinn hefur til þess að semja við kröfuhafa sína af hálfu lögmanna sem hafa reynslu af slíkum víðtækum samningum.“$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi bókun:$line$“Í bókun Sjálfstæðisflokksins felast tillögur að verkefnum sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði bæði í fjárhagslegu og lagalegu tilliti, af stjórnendum bæjarins og í samráði við færustu sérfræðinga landsins á viðkomandi sviðum.“ $line$
-
0906229 – Hellisgata 16, sala
Lagt fram tilboð Gunnhildar S. Gunnarsdóttur og Hilmars Þórðarsonar dags. 30. september 2011 í íbúð Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar á fyrstu hæð hússins að Hellisgötu 16.$line$Einnig lögð fram afgeiðsla umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 5.10. sl. þar sem mælti er með að gengið verði að tilboðinu.
Bæjaarráð samþykkir fyrirliggandi tilboð og felur umhverfis- og framvkæmdasviði að ganga frá málinu.
-
1109008 – Lengd viðvera fatlaðra framhaldsskólanema
Lögð fram tillaga fjölskylduráðs frá 21.9.sl. um gjald fyrir lengda viðverðu sem vísað var til bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gjald fyrir lengda viðveru verði 14.000 kr. á mánuði.“
-
1104262 – Sveitarstjórnalög, 726. mál
Tekið fyrir að nýju.$line$Lögmaður bæjarins Anna Jörgensdóttir mætti á fundinn og fór yfir helstu breytingar.
Til kynningar.
-
0706404 – Siðareglur kjörinna fulltrúa.
Farið yfir gildandi siðareglur.
Bæjarráð vísar siðareglunum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
-
1105500 – SSH framtíðarhópur safnamál
Lögð fram lokaskýrsla verkefnahóps SSH um samstarf safna.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í menningar- og ferðamálanefnd.
-
1109072 – SSH framtíðarhópur, stoðkerfi
Tekið fyrir að nýju.$line$Fjármálastjóri sem átti sæti í verkefnahópnum fór yfir vinnu hópsins og helstu niðurstöður.
Til kynningar.
-
1110032 – SSH framtíðarhópur, byggðasamlög
Lögð fram skýrsla verkefnahóps SSH um byggðasamlög.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdaráði.
Umsóknir
-
1109349 – Strandgata 55, beiðni um lóðarstækkun
Jóhannes Viðar Bjarnason sækir, f.h. Fjörukráarinnar ehf, með bréfi dags 26.9.2011 um lóðarstækkun á lóðinni nr. 55 við Strandgötu, skv. meðfl. lóðarblaði.$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarsviðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Fjörukránni ehf viðbótarlóð við Strandgötu 55 í samræmi við fyrirliggjandi gögn, umsögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarsviðs.“
-
10071033 – Vörðustígur 5, ljósastaur og stígur
Lagt fram erindi Elsu H. Hjörleifsdóttur og Hjálmars Loftsonar varðandi stíg gegnum lóð þeirra að Vörðustíg 5 en afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísaði erindi þeirra um lóðarbreytingu til bæjarráðs.
Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulags- og byggingaráðs.
Fundargerðir
-
1109021F – Menningar- og ferðamálanefnd - 168
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 27.9. sl.
Lagt fram.
-
1110001F – Hafnarstjórn - 1399
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 4. október sl.
Lagt fram.
-