Kynntar hugmyndir sem fram komu á hugarflugsfundi um verkefni umhverfis- og framkvæmdasviðs. Rætt um erindisbréf sviðanna og verkaskiptingu milli þeirra. Sameiginlegt með umhverfis- og framkvæmdaráði.
Skipulags- og byggingarráð
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Þóroddur Steinn Skaptason varamaður
Ritari
- Ólafur Helgi Árnason skrifstofustjóri
-
Almenn erindi
-
1108227 – Umhverfismál, hugarflugsfundur
Ráðin þakka fyrir kynninguna. Lögð er áhersla á góða og virka samvinnu sviðanna í tengslum við umhverfismál almennt sem fer saman við aukna áherslu sem lögð verður á málaflokkinn með nýju fyrirkomulagi sem felst meðal annars í því að ráðin haldi sameiginlega fundi eigi sjaldnar er tvisvar á ári.
-
1109378 – Umhverfisteymi, erindsbréf
Rætt um erindisbréf og verkefni umhverfisteymis. Sameiginlegt með umhverfis- og framkvæmdaráði.
Lagt fram. $line$Skipulags- og byggingarráð og Umhverfis- og framkvæmdaráð fagna því hve vel tókst til með hreinsun hraunsins þann 16. september og færa þeim sem þar tóku þátt bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Sérstaklega er Hraunavinum þakkað þeirra frumkvæði að þessu hreinsunarátaki. Lagt er til að 16. september verði árlega dagur hreinsunar og er umhverfisteymi ráðanna falið að vinna áfram að því máli.
-
SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 21.09.11 og 28.09.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.
Lagt fram.
-
1101002 – Hjólreiðastígar, starfshópur um skipulag
Lögð fram skýrsla starfshópsins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar þeim aðilum sem sæti áttu í vinnuhópnum sem og öllum íbúum sem tóku þátt með því að koma með ábendingar og tillögur fyrir sitt framlag og vísar skýrslunni til skoðunar í nýstofnuðu Umhverfisteymi og þá sérstaklega með tilliti til kostnaðar.$line$Ennfremur leggur ráðið áherslu á að við alla skipulagsvinnu á vegum bæjarins verði sérstaklega hugað að fjölbreyttum samgöngum og góðum tengingum við nágrannasveitarfélögin enda verði vistvænar samgöngur einn þeirra þátta sem sérstaklega verður tekin til endumats í endurskoðun aðalskipulags fyrir Hafnarfjörð.
-
1105012 – Göngu- og hjólastígar - öryggismál.
Sviðsstjóri gerir grein fyrir ýmsum atriðum varðandi öryggi á göngu- og hjólreiðastígum.
Sviðsstjóra er þakkað fyrir kynninguna.
-
1108205 – Skógarás 2, tvær íbúðir
Regin Grímsson óskar með bréfi dags 18.08.2011 eftir að fá að breyta Skógarás 2 í tveggja íbúða hús.Efri og neðri hæð með tveimur fastanúmerum. Skipulags- og byggingarráð fól sviðsstjóra 06.09.11 að gera grófa úttekt á því hvaða áhrif það gæti haft á heildar íbúafjölda í Áslandi 3 væri farið út í það að þétta byggð með umbeðnum hætti og skoða jafnframt hvaða áhrif það hefði á aðra þjónustuþætti miðað við núverandi ástand. Lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á þessum þáttum.
Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að undirbúa hverfiskönnun þar sem meðal annars verði kannaður hugur íbúa í Áslandi 3 til fjölgunar skráðra íbúða og fleiri þátta er varða skipulag og framkvæmdir í hverfinu.
-
1108310 – Fífuvellir 4, breyting á einbýli í tvíbýli
Jón Óskar Agnarsson leggur inn 30.08.2011 fyrirspurn, óskar eftir að fá að breyta einbýli í tvíbýli á lóðinni. Sjá meðfylgjandi gögn. Skipulags- og byggingarráð fól sviðsstjóra 06.09.11 að gera grófa úttekt á því hvaða áhrif það gæti haft á heildar íbúafjölda á Völlum væri farið út í það að þétta byggð með umbeðnum hætti og skoða jafnframt hvaða áhrif það hefði á aðra þjónustuþætti miðað við núverandi ástand. Lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á þessum þáttum.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda.
-
SB060858 – Vellir 7. áfangi, deiliskipulagsvinna.
Framhald umræðu tillagna vinnuhóps vegna endurskoðunar skipulagsins.
Skipulags- og byggingarráð leggur til að deiliskipulag Valla 7 verði tekið til sérstakrar endurskoðunar með það að markmiði að laga núverandi skipulag að almennum kröfum um vistænt skipulag. Farið verði í að endurgera skilmála og yfirfara núgildandi skipulag en þess um leið gætt að sem mest hagkvæmni verði í nýtingu á þeim framkvæmdum sem þegar hafa átt sér stað í hverfinu. SBH tekur undir þær tillögur vinnuhóps sem settar eru fram í skýrslunni. Ráðið samþykkir að vinna við endurskoðun deiliskipulags verði unnin af starfsfólki skipulags- og byggingarsviðs og hafin verði undirbúningur að þeirri vinnu.
-
0708068 – Fornubúðir 1A (Óseyrarbraut 1b)
Farið yfir stöðu mála lóðarinnar Fornubúða 1A / Óseyrarbrautar 1B. Hafnarstjórn lagði til við skipulags- og byggingaráð á fundi 22.12.10 að lóðinni Óseyrarbraut 1b verði skipt upp og sameinuð lóðunum Óseyrarbraut 1 og Hvaleyrarbraut 2 í samræmi við tillögu 2, sjá tillögur í málinu. Skipulags- og byggingarráð heimilaði 18. janúar 2011 að erindið yrði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010. Grenndarkynningu er lokið, athugasemdir bárust. Lögð fram drög skipulags- og byggingarsviðs að svörum við athugasemdum.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og gerir að sínum. Skipulags- og byggingarráð fellst á tillögu Hafnarstjórnar um skipulag sem felur í sér skiptingu á lóðinni milli Fornubúðar 1A og Óseyrarbrautar 1b, sem grenndarkynnt var 18. janúar 2011 og afgreiðslu erindisins lokið í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
-
0708097 – Lækjargata 2, Dvergslóðin, deiliskipulag
Tekin til umræðu tilhögun vinnu við deiliskipulag Lækjargötu 2 og nágrennis í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 1. júní 2008. Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði 22.06.2010 að hefja undirbúning hugmyndasamkeppni í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 01.06.2008. Áður lögð fram drög að lýsingu fyrir hugmyndasamkeppni.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir keppnislýsingu með áorðnum breytingum.$line$Tillaga að skipun dómnefndar verður lögð fram á næsta fundi.
-
1109091 – Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins heildarendurskoðun.
Framhald umræðu um niðurstöður starfshóps SSH skipuðum skipulagsfulltrúum sveitarfélaganna um aðferðafræði.
Formanni er falið að gera tillögu að umsögn sem lögð verður fram á næsta fundi.
-