Bjarni Frostason sækir 13.09.11 um breytingu á innra skipulagi, samkvæmt teikningum Þormóðar Sveinssonar dag.30.08.11.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri
- Málfríður Kristjánsdóttir starfsmaður
- Anna Sofia Kristjánsdóttir starfsmaður
- Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
- Sigurður Steinar Jónsson starfsmaður
Ritari
- Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
-
A-hluti byggingarleyfa
-
1109154 – Blikaás 16,breyting
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010.
-
1109158 – Straumsvík, stálþjónustustigi.byggingarleyfi
Straumsvík sækir um leyfi þann 13.09.2011 um að setja upp stálþjónustustiga á suðurhlið Kersmiðju samkvæmt teikningum frá Rafni Kristjánssyni arkitekt dagst. 08.09.2011.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
B-hluti skipulagserindi
-
1004009 – Skógarás 6, fyrirspurn
Lagt fram bréf Einars Gauts Steingrímssonar hrl og Gunnhildar Pétursdóttur hrl dags. 14.09.11 þar sem þess er farið á leit að umrætt hús fái að standa og deiliskipulag 3. áfanga Áslands verði fellt að því.
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
-
1109127 – Sléttuhlíð, svæði fyrir býflugur
Borist hefur tölvupóstur frá Helga Laxdal og Katrínu Árnadóttur dags. 09.09.09 þar sem þau óska eftir að fá spildu til afnota til að koma fyrir býflugnabúi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
-
1109121 – Selvogsgata 16,Viðbygging.Fyrirspurn
Þórður Guðbjörnsson og Margrét Þórarinsdóttir leggja þann 09.09.2011 inn fyrirspurn um að stækka húsið skv. meðfylgjandi uppdrætti.
Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
-
1109069 – Vallabarð 14, deiliskipulagsbreyting
Halldór Ingólfsson sækir dags. 06.09.11 um deiliskipulagsbreytingu á Vallabarði 14 skv. uppdrætti dags. 10.08.11. Bygginarreitur fyrir inngang og girðingu á lóðarmörkum. Erindið var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skriflegt samþykki allra barst.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið og að afgreiðslu verði lokið skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-
1109128 – Koparhella 1 deiliskipulagsbreyting
Borist hefur beiðni frá Steypustöðinni Borg um Koparhellu 1, breyting á byggingarreit lóðar.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið.
-
1109156 – Suðurgata 72 ólöglegar framkvæmdir
Stjórn húsfélagsins að Suðurgötu 72 óskar með bréf dags 27.07.2011 eftir að ólögmætar framkæmdir verði stöðvaðar í íbúð merkt 01-0001.Hafnar eru framkvæmdir við að gera tvær íbúðir á staðnum.
Erindi um fjölgun íbúða hefur verið synjað. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda skylt að fjarlægja hinar ólögmætu framkvæmdir innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði skv. 56. grein mannvirkjalaga um dagsektir.
-
1101169 – Lónsbraut 4.Ástandskoðun lóðar.
Víðir Ólafsson f.h. Rafspan ehf. mótmælir með bréfi dags. 9.9.2011 að óviðunandi ástand sé á þeim eignarhluta sem er þinglýstur á Rafspan ehf. á Lónsbraut 4.
Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að samkvæmt eignaskiptalýsingu sem samþykkt var 14. des.2004 þá er lóðin sameign allra og því á ábyrgð allra í húsfélaginu (hlutfallstala í lóð er í hlutfalli við heildareignahlut á lóð).
-
1109126 – Þrastarás 73, byggingarstig og notkun.
Lokaúttekt ólokið.Þrastarás 73 er á byggingarstigi 4(fokhelt).
Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags. 04.10.11 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um.
-
1109159 – Flatahraun 1, byggingarstig og notkun.
Lokaúttekt ólokið.
Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags. 05.10.11 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um.
C-hluti erindi endursend
-
1109122 – Álfhella 7 og 9, fyrirspurn um lóðir
Ingólfur Örn Steingrímsson leggur inn fyrirspurn dags 09.09.2011 um lóðirnar við Álfhellu.
Frestað, skoðað milli funda.
-
1109155 – Norðurbakki 11 og 13,breyting á eignahaldi sameign í séreign.byggingarleyfi
Fagtak ehf sækir þann 13.09.2011 um að breyta eignahaldi á hluta þaksvala úr sameign sumra í séreign samkvæmt teikningum frá Sigurði Þorvarðarsyni dagst. 25.janúar 2006.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.
-