Capasent kynnti niðurstöður fundarins 24. ágúst s.l. fyrir starfsmönnum Umhverfis- og framkvæmdasviði og Umhverfis- og framkvæmdaráði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
- Hörður Þorsteinsson aðalmaður
- Valdimar Svavarsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Gestur Svavarsson varamaður
Fundinn sátu einnig Sigurður P Harðarson, Helga Stefánsdóttir og Sigurður Haraldsson Framkvæmdasviði.
Ritari
- HS
Fundinn sátu einnig Sigurður P Harðarson, Helga Stefánsdóttir og Sigurður Haraldsson Framkvæmdasviði.
-
Almenn erindi
-
1108227 – Umhverfismál, hugarflugsfundur
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir kynninguna og felur Umhverfis-og framkvæmdaráði að koma með tillögu að aðgerðaáætlun.
-
1006286 – Auðlindastefna.
Tekið til umræðu gerð umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð. Lögð fram eldri gögn.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur Umhverfis-og framkvæmdasviði að skoða hvernig vinnu við auðlindastefnu hefur verið háttað hjá öðrum sveitarfélögum.
-
0906132 – Sorphreinsun í Hafnarfirði
Ishmael David mætti til fundarins og kynnti úttekt sem gerð hefur verið á upplandinu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að skipaður verði vinnuhópur sem á að fara yfir sorphirðumál bæjarins. Hópinn skipar Margrét G Magnúsdóttir, Helga Ingólfsdóttir, Árni S Jónsson ásamt starfsmönnum Umhverfis- og framkvæmdasviðs
-
1001168 – Magni ehf, verðbætur
Lagt fram erindi Málflutningsstofu Reykjavíkur dags. 23. ágúst 2011 fyrir hönd verktaka Magna hf þar sem gerð er krafa um verðbætur á óverðbætta verksamninga
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að vinna áfram að málinu.
-
1109006 – Uppland Hafnarfjarðar - hreinsun
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og vekur athygli á að sérstakt átak verður í hreinun í upplandinu á Degi umhverfisins 16. sept. n.k.
-
1109051 – Verkefnisstaða umhverfis- og framkvæmdarsviðs
Farið yfir verkefnastöðu sviðsins.
-
1004521 – Stjórnsýsla endurskoðun 2010, starfshópur
Tekið fyrir að nýju.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram bókun;“Skýrslan er góð upplýsingagjöf en þarfnast frekari skoðunar. Kostnaðarútreikningar á hugsanlegum breytingum sem nefndar eru varðandi húsnæðismál liggja ekki fyrir, hvorki hvað varðar breytingar á húsnæði eða hugsanlegan tilflutning á starfsemi sem varðar beina þjónustu við íbúa. Skoða ber framkomna möguleika í skýrslunni betur og taka mið af breyttu umfangi sviðanna. Einnig að meta áhrif mannvirkjalaga og þær breytingar sem þau hafa á starfsemi umræddra sviða. Mikilvægt er að meta fleiri kosti til sameiningar eða samþættingar innan stjórnsýslunnar og horfa til lengri framtíðar.“
-
1101014 – Sorpa bs, fundargerðir 2011
Lögð fram fundargerði 288. fundar
Lagt fram.
-
1101013 – Strætó bs, fundargerðir 2011
Lögð fram fundargerði 158. fundar
Lagt fram.
-