Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 10.8 2011 og 17.8.2011. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.
Skipulags- og byggingarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Bjarki Jóhannesson, sviðstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi, og auk hans Berglind Guðmundsdóttir og Anna Sofía Kristjánsdóttir undir þeim erindum sem þær varðaði.
Ritari
- Bjarki Jóhannesson sviðstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Bjarki Jóhannesson, sviðstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi, og auk hans Berglind Guðmundsdóttir og Anna Sofía Kristjánsdóttir undir þeim erindum sem þær varðaði.
-
Almenn erindi
-
SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa
Lagt fram.
-
11023144 – Endurskoðun lóðaverðs, starfshópur
Gerð grein fyrir vinnu starfshóps. Eyjólfur Sæmundsson formaður hópsins kom og gerði grein fyrir starfi hópsins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar Eyjólfi fyrir kynninguna.
-
1105318 – Reykjanesbraut, tvöföldun og færsla við Straumsvík
Lögð fram fornleifaskráning Katrínar Gunnarsdóttur fornleifafræðings dags. 2011, sem gerð var til að ákveða vegstæði eftir færslu.
Frestað milli funda. Óskað eftir kynningu.
-
1108030 – Óttarstaðaland fornleifaskráning
Lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnarfjarðar fyrir Óttarsstaðaland og Óttarsstaðakot dags. janúar 2010 vegna aðalskipulagsvinnu.
Frestað milli funda. Óskað eftir kynningu.
-
0909068 – Samgönguvika
Umhverfis- og staðardagskrárfulltúi gerði grein fyrir samgönguviku sem haldinn verður 16-22. september nk.
Skipulags- og byggignarráð þakkar kynninguna. Óskað eftir dagskrá fyrir Hafnarfjörð fyrir næsta fund.
-
1107099 – Helgafell, útsýnisskífa
Jakob Hálfdánarson leggur inn erindi dags. 23.02.11 um að setja upp hringsjá sunnan Helgafells.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í hugmyndina og felur skipulags- og byggingarsviði að kanna útfærslu á undirstöðum fyrir skífuna ásamt kostnaði í samvinnu við umhverfis- og framkvæmdasvið.
-
0907153 – Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund deiliskipulag
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49. Skipulags- og byggingarsvið gerði áður grein fyrir athugun á aðkomu að vitanum bak við lóðina Hverfisgata 41 og fundi með íbúum umhverfis vitann 08.04.2010. Áður lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á nýtingarmöguleikum Hverfisgötu 41. Skipulagið var auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust. Lögð fram á fundi 9.8.2011 samantekt skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum og tillaga að svari við þeim
Skipulags- og byggignarráð gerir svör skipulags- og byggingarsviðs að sínum, samþykkir skipulagið og að meðferð verði lokið í samræmi við 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir Hverfisgötu-Mjósund-Austurgötu-gunnarssund og að meðferð verði lokið í samræmi við 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.“
-
1012098 – Strandgata 55,fyrirspurn
Fjörukráin leggur 09.12.10 inn breytta fyrirspurn um að byggja torfhús fyrir aftan Fjörukrána sjá meðfylgjandi blað. Ný tillaga ásamt gögnum og bréfi til skipulagsráðs bárust 09.08.2011. Skipulags- og byggingarráð afgreiddi fyrri fyrirspurn 01.02.2011. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17.08.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggignarráð bendir á að umsókn um lóðastækkun skal berast bæjarráði. Lóðastækkun er forsenda þess að farið væri í frekari framkvæmdir á þessu svæði. Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið sem gefur tilefni til að skoða deiliskipulag á reitnum. Afgreiðslu frestað þar til niðurstaða um mögulega lóðastækkun liggur fyrir.
-
1108074 – Glitvangur 27, breyting á bílskúr
Gunnar Kristjánsson sækir 10.08.2011 um leyfi fyrir breytingu á núverandi bílskúr í íveruherbergi sem skipt er upp í svefnherbergi, baðherbergi, stofu og geymslu. Samkvæmt teikningum Gústafs ólafssonar dagsettar 14.07.2011. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17.08.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs.
Skipulags- og byggingarráð bendir á að erindið samræmist ekki skilmálum deiliskipulags, sem er í vinnslu.
-
1104089 – Aðalskipulag gatnamót við Straumsvík
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar gatnamót við innkeyrsluna af Reykjanesbraut inn á lóð álversins. Lagt er til að gerð verði undirgöng fyrir vinstri beygjur.$line$Tillagan var auglýst frá 8.7. til 19.8.2011. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillöguna og að afgreiðslu verði lokið samkvæmt 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar gatnamót við innkeyrsluna af Reykjanesbraut inn á lóð álversins dags. 08.04.2011 og að afgreiðslu verði lokið samkvæmt 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010.“
-