Nýr sviðsstjóri mætti til fundarins.$line$Á fundi bæjarstjórnar þ. 15. júní sl. var samþykkt að ráða Rannveigu Einarsdóttur félagsráðgjafa sem sviðsstjóra fjölskylduþjónustu.
Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir aðalmaður
- Geir Jónsson aðalmaður
- Elín Sigríður Óladóttir aðalmaður
- Gunnar R Sigurbjörnsson sviðsstjóri
Ritari
- Margrét L. Jónsdóttir ritari fjölskylduráðs
-
Kynning
-
1105210 – Sviðsstjóri fjölskylduþjónustu, ráðning
-
1106170 – Ungt fólk 2010, framhaldsskólanemar
Rannsóknirnar Ungt fólk eru rannsóknir á högum, líðan og aðstæðum ungs fólks sem gerðar hafa verið reglubundið frá árinu 1992 í mismunandi aldurshópum ungmenna. Í þessari skýrslu er athyglinni beint að samanburði við rannsóknirnar frá árunum 2004 og 2007, en líta má á rannsóknina Ungt fólk 2010 sem beint framhald þeirra.$line$Lagt fram til kynningar.
-
1104105 – ÍBH, 47. þing - kynning á samþykktum
Til fundarins mætti Elísabet Ólafsdóttir frá ÍBH og kynnti samþykktir þingsins.
-
0705196 – Sólvangur
Formaður fjölskylduráðs gerði grein fyrir stöðunni í vinnu starfshópsins sem skipaður var í framhaldi af tillögu bæjarstjórnar 20. apríl sl.
Almenn erindi
-
1106059 – Fatlaðir, málefni, eignarhald og leiga fasteigna
Til fundarins mættu Atli Þórsson, Haukur Haraldsson og Hrönn Hilmarsdóttir frá félagsþjónustunni.$line$Lögð fram bókun bæjarráðs frá 9. júní sl. varðandi málið.
Í starfshópinn er Atli Þórsson skipaður frá fjölskyldusviði.
-
0701245 – Atvinnuástandið
Lögð fram til kynningar skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið í maí sl.
-
0912025 – Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði
Lagðar fram til kynningar tölur um atvinnuleysi í Hafnarfirði sl. þrettán mánuði.
-