Tillögur að breytingum kynntar. $line$ $line$ $line$
Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir aðalmaður
- Geir Jónsson aðalmaður
- Elín Sigríður Óladóttir aðalmaður
Ritari
- Margrét L. Jónsdóttir ritari fjölskylduráðs
-
Kynning
-
0702245 – Sérstakar húsaleigubætur
-
1204432 – Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
Fjölskylduráð óskar eftir að fræðslusvið beri ábyrgð á og vinni að verkefni G1 í framkvæmdaáætlun, samfella milli skólastiga.$line$Markmiðið er að auka samstarf fjölskylduþjónustu og skólakerfis við að samþætta þjónustu og nám fatlaðra nemenda og tryggja að samþættingin fylgi nemendum allan námsferilinn.$line$$line$Fjölskylduráð óskar eftir að framkvæmdasvið beri ábyrgð á og vinni að verkefni A1 í framkvæmdaáætlun, manngert umhverfi.$line$Markmið verkefnisins er að tryggja öllum jafnt aðgengi að manngerðu umhverfi.$line$$line$Fjölskylduráð óskar eftir að stjórnsýslusvið beri ábyrgð á og vinni að verkefni A5 í framkvæmdaáætlun, upplýsingar.$line$Markmið verkefnisins er að allt fatlað fólk hafi óhindraðan aðgang að upplýsingum um réttindi sín og þá þjónustu sem í boði er.
Almenn erindi
-
0701243 – Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 16/2012.
Niðurstaða málskotsnefndar staðfest.
Fundargerðir
-
1211024F – Íþrótta- og tómstundanefnd - 162
Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 3. des. sl.
-