Lagt fram erindi frá SSH dags 20. nóvember 2012 til byggðaráða aðildarsveitarfélaganna varðandi drög að eigendastefnu fyrir SORPU og Strætó bs. Bæjarstjóri óskar eftir umsögn ráðsins fyrir 29. nóvember n.k.$line$Gunnar Rafn Sigurbjörnsson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs mætti til fundarins og kynnti málið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir formaður
- Hörður Þorsteinsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
- Gestur Svavarsson varamaður
Ritari
- SH
-
Almenn erindi
-
1211292 – SSH framtíðarhópur, byggðasamlög, eigendastefna
Frestað til næsta fundar.
-
1210658 – Gjaldskrár Hafnarfjarðarbæjar 2013
Lagðar fram gjaldskrár hjá Umvherfi og framkvæmdum.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti neðangreindar gjaldskrár og vísar þeim áfram til bæjarráðs til afgreiðslu.$line$$line$Gjaldskrá Vatnsveitu Hafnarfjarðar;$line$Gjaldskrá Fráveitu Hafnarfjarðar; $line$Gjaldskrá Umhverfis og framkvæmda;$line$Gjaldskrá um hreinsun taðþróa í Hlíðarþúfum;$line$Gjaldskrá um sorphirðu í Hafnarfirði;$line$Gjaldskrá vegna bílastæða að Tjarnarvöllum.$line$$line$Umhverfis- og framkvæmdarráð vill árétta að tillaga um hækkun á sorphirðugjöldum er tilkomin vegna fjárfestinga á nýjum tunnum, hækkun á framlagi bæjarins til SORPU bs vegna vísitöluhækkunar og og aukningar á móttökustöðum og aukinnar þjónustu í sorphirðu og endurvinnslu.
-
1210331 – Umhverfi og framkvæmdir - fjárhagsáætlun 2013
Fjárhagsáætlun 2013 rædd.
Farið yfir áætlun og frestað til næsta fundar-aukafundur verður næsta föstudag.
-
1210008 – Hvaleyrarskóli, heilsuverkefni, styrkumsókn
Á fundi bæjarráð þann 15. nóvember sl. var ofangreint mál til umfjöllunar og í framhaldi af því er erindi umsóknarinnar vísað til nánari skoðunar hjá fræðsluþjónustu og umhverfi og framkvæmdum.
Vísað til Umhverfis- og framkvæmda til skoðunar.
-
1211083 – Byggðasafn 2012
Á fundi Menningar og ferðamálanefnd ..nóvember s.l. var greinagerð um ástandi safnhúsa vísað til Umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Vísað til fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
-
1211150 – Krýsuvík, uppgræðsla 2013
Lagt fram erindi Landgræðslu ríkisins dags. 5. nóvember s.l.varðandi styrk til landgræðslu í Krýsuvík. Lögð fram áfangaskýrsla 2012 um uppgræðslu í Krýsuvík.
Vísað til fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
-
1211227 – Strætó bs - Farþegatalningar í október 2012
Lögð fram skýrsla Strætó bs varðandi farþegatalningar haustið 2012.
Umhverfis- og framkvæmdarráð lýsir ánægju sinni með þá miklu farþegaaukningu sem orðið hefur á innanbæjarleiðum Hafnarfjarðar. $line$Umhverfis- og framkvæmdarráð óskar eftir því að teknar verði saman allar þær ábendingar og athugasemdir sem borist hafa vegna leiða 43 og 44 frá og með hausti.
-
1211251 – Fatasöfnun Rauða krossins á grendarstöðvum
Lagt fram erindi Fatasöfnunar Rauða krossins ódags varðandi ósk um samstarfi við Hafnarfjarðabæ hvað varðar að koma litlum fatasöfnunagámum á valdar grenndarstöðvar.
Umhverfis- og framkvæmdarráð samþykkir erindið.
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lagðar fram verkfundargerðir nr. 7 og 8, vegna lokun frjálsíþróttahúss.
Fundargerðir
-
1201183 – Strætó bs, fundargerðir 2012
Lagðar fram fundargerðir nr.174 og 175
-