Reglur um notendstýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði.$line$Hrönn Hilmarsdóttir fjölskyldusviði mætti til fundarins og kynnti reglurnar.
Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir aðalmaður
- Geir Jónsson aðalmaður
- Elín Sigríður Óladóttir aðalmaður
Ritari
- Auður Þorkelsdóttir skrifstofustjóri
-
Kynning
-
1101401 – Notendastýrð persónuleg aðstoð
Lagt fram.
-
1204432 – Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014.
Lögð fram þingáslyktun um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014.$line$Hrönn Hilmarsdóttir fjölskylduþjónustu fór yfir framkvæmdaáætlunina.
Lagt fram.
-
1211099 – Einstaklingsmál á dagskrá, Minnisblað
Heimild sveitarstjórnarmanna til þess að fá einstaklingsmál tekin á dagskrá fundar í fastanefnd sveitarfélags.$line$Anna Jörgensdóttir lögmaður mætti til fundarins.
Lagt fram.
-
1009370 – Fjárhagsstaða fjölskyldusviðs
Atli Þórsson rekstrarstjóri fjölskylduþjónustu mætti til fundarins og gerði grein fyrir fjárhagsstöðu fjölskyldusviðs í lok september.
-
1210393 – Betra líf, átak
Lagt fram bréf frá Gunnar Smára Egilssyni formanni SÁÁ dags. 4.okt. sl. þar sem leitað er eftir stuðningi sveitarstjórnar við átakið Betra Líf,bæði í orði og borði.
Lagt fram.
-
1211098 – Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk, leiðbeinandi reglur
Lagt fram bréf frá Blindrafélaginu dags. 15.okt.sl.$line$um leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Lagt fram.
-
1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.
Lögð fram drög að umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð en umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði eftir umsögn um hana á fundi sínum þann 5. september sl.
Lagt fram. Fjölskylduráð óskar eftir að þær áherslur sem fram koma í stefnunni verði hafðar að leiðarljósi í starfsemi Vinnuskólans og tómstundamiðstöðva.
-
1211149 – Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa
Lagður fram tölvupóstur Sambands ísl. sveitarfélaga dags. 13. nóvember 2012 þar sem vakin er athygli á því að 18. nóvember nk. er alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa.
Lagt fram.
-