Forstöðumaður Byggðasafns Hafnarfjarðar, Björn Pétursson, mætir til fundarins til þess að ræða A: ástand safnhúsa, B:áhrif niðurskurðarins á miðlunarþátt safnsins og önnur mál.
Menningar- og ferðamálanefnd
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Dagbjört Gunnarsdóttir formaður
- Unnur Lára Bryde aðalmaður
- Björn Pétursson starfsmaður
Ritari
- Ásbjörg Una Björnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
1211083 – Byggðasafn 2012
A:Menningar- og ferðamálanefnd lýsir yfir miklum áhyggjum af slæmu ástandi húsa Byggðasafnsins og telur að ef ekki verði brugðist við fljótlega muni kostnaður viðgerða hækka mikið. Nefndin vísar málinu til Umhverfis- og framkvæmdarráðs.$line$B: Niðurskurður á fjárveitingu til Byggðasafnsins síðastliðin ár hefur verið það mikill að ekki hefur verið hægt að setja upp nýjar sýningar né hafa allan safnkost opin almenningi.
-
1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.
Umhverfis- og framkvæmdarsvið óskar eftir umsögnum og athugasemdum frá Menningar- og ferðamálanefnd vegna Umhverfis- og auðlindastefnu.
Lögð til kynningar
-
1209124 – Jólaþorpið 2012
Kynning á markaðssetningu og skemmtidagskrá Jólaþorpsins
Nefndin er ánægð með frábæra dagskrá Jólaþorpsins og vonar að allir Hafnfirðingar komi til með að njóta Jólaþorpsins á 10 ára afmæli þess.
-