Umhverfis- og framkvæmadaráð vísar erindi Hollvinasamtaka Hellisgerði, vegna girðingar Bonsai garðsins, til menningar- og ferðamálanefndar til umsagnar.
Menningar- og ferðamálanefnd
23. október 2012 kl. 16:30
í Langeyri, Strandgötu 8
Fundur
188
Mætt til fundar
- Jóhanna Marín Jónsdóttir aðalmaður
- Unnur Lára Bryde aðalmaður
- Dagbjört Gunnarsdóttir aðalmaður
Ritari
- Ásbjörg Una Björnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
1110136 – Hellisgerði - hollvinasamtök
Nefndin tekur jákvætt í beiðni Hollvinasamtaka Hellisgerði að girðingin verði tekin niður sem fyrst.
-
1209124 – Jólaþorpið 2012
Undirbúningur Jólaþorps, gert grein fyrir markaðsetningu.
Rætt um undirbúning og skipulag Jólaþorps, sem gengur mjög vel.
-
1208063 – Álfagarðurinn, samningur um afnot af húsnæði, framlenging
Aðstandendur Álfagarðsins í Hellisgerði óska eftir framlengingu á samningi.
Nefndin tekur vel í að framlengja samningi við Álfagarðinn í 2 ár til viðbótar og hvetur þau áfram til góðra verka.
-
1101215 – Straumur við Straumsvík, leigusamningur
Viking Circle á Íslandi hefur formlega óskað eftir því að segja upp leigusamningi.
Menningar- og ferðamálanefnd óskar eftir því að Framkvæmdasvið sjái um lok leigusamnings. Nefndin hvetur til þess að litið verði til nýrra hugmynda um nýtingu á Straumi.
-