Farið yfir reglur og framkvæmd birtingar fylgiskjala með fundargerðum.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Gunnar Axel Axelsson formaður
- Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
- Geir Jónsson varamaður
Ritari
- Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
-
Almenn erindi
-
1206124 – Fundargerðir, reglur um fylgiskjöl
Kynning.
-
1209499 – Málstefna sveitarfélaga, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn innanríkisráðuneytis dags. 21. september 2012 varðandi mótun málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.
-
0703293 – Landsnet, háspennulínur, breyting
Kynnt drög að viðauka við fyrirliggjandi samkomulag Hafnarfjarðarbæjar við Landsnet frá 25. ágúst 2009. Málið tengist máli nr. 0702055: Aðalskipulag Hafnarfjarðar raflínur og tengivirki.$line$$line$
Bæjarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagðan viðauka við samkomulag Landsnets hf og Hafnarfjarðarbæjar um flutningskerfi raforku frá 25. ágúst 2009.“$line$$line$Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu gera grein fyrir afstöðu sinni til málsins í bæjarstjórn.
-
1201546 – Lausar lóðir og verð árið 2012
Lögð fram tillaga um auglýsingu á lausum lóðum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í lausar lóðir í grónum hverfum.
-
1210001 – Ráð og nefndir, málsmeðferð og verklagsreglur
Tekið til umfjöllunar.$line$Lögð fram bókun fjölskylduráð frá 3.október sl.
Bæjarráð felur forsetanefnd að yfirfara reglurnar.
-
1209363 – Sjálfstæðisflokkur, fyrirspurn í bæjarráði 20.9., kjaramál
Lögð fram svör við framkominni fyrirspurn.$line$Starfsmannastjóri mætti á fundinn og fór yfir svörin.
Lagt fram.
-
1202073 – Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum.
Kynnt drög að umsögn bæjarráðs.
Bæjarráð tekur undir það sjónarmið sem fram kemur í drögum að nýrri stefnu að unnið sé að málefnum ferðaþjónustunnar í nánu og virku samráði við ferðaþjónustufyrirtækin í bænum og jafnframt að hlutverk bæjaryfirvalda eigi fyrst og fremst að felast í því að tryggja þeim góð starfsskilyrði og því að byggja upp nauðsynlega innviði svo greinin geti þróast með eðlilegum og sjálfbærum hætti. $line$$line$Hvað form stefnunnar og framsetningu snertir er mikilvægt að það styðji vel við framkvæmd hennar og auki þannig líkur á að úr einstökum stefnuviðmiðum rætist. Í fyrirliggjandi drögum mætti skerpa frekar á þessari hlið, til dæmis með því að tiltaka einstök verkefni/skref undir hverjum efniskafla (eða sem sjálfstæðum hluta), skilgreina markmið þeirra, í hverjum framkvæmd þeirra á að felast, ábyrgðaraðila, samtarfsaðila, tímabil, áætlaðan kostnað og hvernig mæla skuli árangur í hverju verkefni fyrir sig (mælikvarða).
-
1209311 – Hjúkrunarheimili á Völlum, undirbúningur
Tekin fyrir að nýju drög að erindisbréfi.$line$Tilnefningar í starfshópinn.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að erindisbréfi með áorðnum breytingum.$line$$line$Tilnefningar í hópinn eru.$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir frá bæjarráði$line$Gunnar Axel Axelsson frá fjölskylduráði$line$Helga Ingólfsdóttir frá umhverfis- og framkvæmdaráð
-
1209536 – Útleiga og sala húsnæðis, álit nr. 1/2012
Lagt fram til kynningar útgefið álit Samkeppnisstofnunar nr. 1/2012, „Gæta skal að samkeppnissjónarmiðum við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera.“
Lagt fram til kynningar.
-
1210055 – Flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli
Lagt fram erindi Isavia dags. 1. október 2012 þar sem tilkynnt er að haldin verði flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli 6. október nk.
Lagt fram til kynningar.
-
1210056 – Gjaldskrár 2012
Lögð fram tillaga að leiðréttingu á gjaldskrá vegna frístundaheimila.
Í ljós hefur komið að ekki reyndist unnt að framkvæma samþykkt bæjarstjórnar frá 19. 12, 2011 um gjaldskrá frístundaheimilanna vegna ársins 2012. Á fyrri hluta árs 2012 var stuðst við þá gjaldskrá sem í gildi var síðla árs 2011. Í ljósi þessa vísar bæjarráð eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gjaldskrá frístundaheimila á árinu 2012 verði gjaldskrá sú sem í gildi var fyrir árið 2011.“ $line$
Umsóknir
-
1209232 – Garðavegur 15,umsókn um Lóðastækkun
Lögð fram umsókn Sævars Þórs Guðmundssonar dags. 13. 9.2012 þar sem óskað er eftir lóðastækkun. $line$Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til bæjarráðs á fundi 20. september sl.
Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Sævari Þór Guðmundssyni lóðarstækkun í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og bygginarfulltrúa.“
-
1208453 – Helluhraun 16-18, fyrirspurn
Lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf, dags. 12.9.2012, um stækkun á lóðunum Helluhraun 16 og 18.$line$Erindin var til umfjöllunar á fundi skipulags- og byggingarráðs 18. september sl. sem tók jákvætt í erindið. $line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarmála.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa nánari útfærslu þess.
Styrkir
-
1201181 – Styrkir bæjarráðs 2012
Umsóknarfrestur seinni úthlutunar rann út 1. október sl.$line$Gerð grein fyrir fjölda umsókna.$line$Úthlutun skal lokið fyrir 1. desember nk.
Lagt fram.
Fundargerðir
-
1201468 – Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir 2012
Lögð fram fundargerð frá Stjórn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.9.2012.$line$Vakin er athygli á bókunum í dagskrárliðum 1 og 3.$line$Kynnt skýrsla um rekstur og stjórnsýslu skíðasvæða sem getið er um í 1. lið.
Lagt fram til kynningar.
-
1201182 – Sorpa bs, fundargerðir 2012
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 24. september og 1. október sl.
Lagt fram til kynningar.
-
1209024F – Hafnarstjórn - 1414
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 2. október sl.
Lagt fram til kynningar.
-
1210003F – Menningar- og ferðamálanefnd - 187
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 2. október sl.
Lagt fram til kynningar.
-