Hafnarstjóri fór yfir óskir skipsstjóra flutningaskipa í Straumsvík um að endurnýja varnir á Austurbakka í svokallaða Blaðfendera.$line$Einnig var kynnt kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Haraldur Þór Ólason aðalmaður
- Örn Tryggvi Johnsen varamaður
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
-
Almenn erindi
-
1209154 – Fenderar á Austurbakka, Straumsvík
Hafnarstjórn samþykkir að verkefnið verði boðið út samhvæmt gildandi reglum um útboð.
-
1202073 – Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum.
Tekin til umsagnar „Stefnu Hafnarfjarðarbæjar í ferðamálum“, sem menningar- og ferðamálanefnd vísaði til umsagnar hafnarstjórnar með bréfi dagsettu 4. september 2012, undirrituðu af Marín Hrafnsdóttur, menningar- og ferðamálafulltrúa.
Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög sem grunn í umsögn hafnarstjórnar og felur hafnarstjóra og Sigurbergi Árnasyni að ganga frá og leggja lokadrög að umsögninni fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
-
1209314 – Markaðssetning
Farið yfir hugmyndir um markaðssetningu hafnarinnar í samvinnu við hagsmunaaðila á hafnarsvæðinu.
Hafnarstjórn samþykkir að vinna að undirbúningi markaðsátaks í skipaþjónustu í samstarfi við fyrirtæki, sem veita slíka þjónustu í Hafnarfjarðarhöfn.$line$Hafnarstjóri mun leggja áætlun um verkefnið fram á næsta fundi hafnarstjórnar.
-
1209253 – Kvörtun um hávaða frá höfninni
Lögð fram kvörtun Hrannars Hallgrímssonar, Norðurbakka 25A vegna hávaða frá starfsemi á hafnarsvæðinu.
Haraldur Þ. Ólason vék af fundi undir þessum lið.$line$Hafnarstjórn samþykkir að óska aðstoðar Heilbrigðiseftirlits Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðisins við að kanna þessi mál.
-
1207102 – Hafnasambandsþing 2012
Farið yfir dagskrá og tillögur að ályktunum Hafnasambandsþings 20. og 21. september 2012, haldið í vestmannaeyjum.
-
1209178 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2013
Hafnarstjóri kynnti tímaáætlun fjárhagáætlunar Hafnarfjarðarbæjar, stofnana og fyritækja bæjarins fyrir árið 2013.
Hafnarstjórn samþykkir að halda aukafund fimmtudaginn 11. október kl 8:00 og taka þá fjárhagsáætlun hafnarinnar til fyrri umræðu.$line$Síðari umræða hafnarinnar verður þriðjudaginn 16. október.
-