Skipulag í kynningu
Hér má sjá lista með þeim skipulagsmálum sem eru til kynningar hjá Hafnarfjarðarbæ. Allar skipulagsauglýsingar og grenndarkynningar sveitarfélagsins eru birtar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Skipulag í kynningu
Skipulag og framkvæmdarleyfi í kynningu
| Breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns 2. áfanga vegna Títanhellu 12 og 14 | Grenndarkynning | 22.10.2026 - 19.11.2026 |
|---|---|---|
| Breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns 3. áfanga vegna Jötnahellu 3 | Grenndarkynning | 3.11.2026 - 1.12.2026 |
| Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis Kapelluhrauns vegna Blýhellu 7 og 9 | Deiliskipulag, Deiliskipulagsbreyting | 29.10.2026 - 10.12.2026 |
| Deiliskipulagsbreyting Íbúðarhverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar vegna ofanvatnslausnar milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegar | Deiliskipulagsbreyting | 5.11.2026 - 20.12.2026 |
| Breyting á deiliskipulagi Hvaleyrarholts Suð-Vestur vegna Suðurholts 2b | Deiliskipulagsbreyting | 5.11.2026 - 20.12.2026 |
Ekkert fannst
Athugasemdir við skipulag í kynningu
Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is eða hafa samband við þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma: 585-5500.
———————
Umhverfis- og skipulagssvið notar persónugreinanlegar upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag (kennitölu, nafn og netfang) til þess að vinna úr athugasemdum og auðkenna aðila. Þetta er í samræmi við Skipulagslög nr. 123/2010 og byggir á heimild í 3. tl. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Gögn eru varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Heimilt er að leggja fram kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn hagsmunaaðila í fundargerðum skipulags- og byggingarráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs á netinu.
Eldri kynningar
Ekkert fannst