Fulltrúar samstarfsvettvangs mæta til fundarins og skilar skýrslu og fer yfir hana.
Eva Rún Michelsen verkefnastjóri situr fundinn undir þessum lið.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Fundinn sat einnig Sigríður Kristinsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarlögmaður.
Fundinn sat einnig Sigríður Kristinsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarlögmaður.
Fulltrúar samstarfsvettvangs mæta til fundarins og skilar skýrslu og fer yfir hana.
Eva Rún Michelsen verkefnastjóri situr fundinn undir þessum lið.
Karl Guðmundsson kynnti skýrslu samstarfsvettvangs.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og þakkar starfshópnum jafnframt fyrir vel unnin störf.
Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Mannauðsstjóri kynnti þá vinnu og undirbúning sem í gangi hefur verið hjá Hafnarfjarðarbæ vegna verkefnisins. Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í fyrirliggjandi minnisblaði mannauðsstjóra, m.a. um að settur verði á laggirnar starfshópur um styttingu vinnuvikunnar og þá þvert á stofnanir sveitarfélagsins þar sem áhugi og vilji sveitarstjórnarmanna er til staðar fyrir málefninu.
Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að Hafnarfjarðarkaupstaður veiti sambandinu fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd til nánar tilgreindra stéttarfélaga.
Tilaga að bókun:
Bæjarráð samþykkir að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd við eftirtalin stéttarfélög:
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Félag leikskólakennara
Félag stjórnenda leikskóla
Skólastjórafélag Íslands
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
SFR stéttarfélag í almannaþjónustu
Verkalýðsfélagið Hlíf
Félag íslenskra félagsvísindamanna
Stéttarfél. bókasafns- og upplýsingafræðinga
Fræðagarður
Þroskaþjálfafélag Íslands
Stéttarfélag lögfræðinga
Félag skipstjórnarmanna
Verkfræðingafélag Íslands
Sálfræðingafélag Íslands
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga
Félagsráðgjafafélag Íslands
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Félag vélstjóra og málmtæknimanna
MATVÍS
Samiðn
Samband stjórnendafélaga
Bæjarráð samþykkir að fela stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð fyrir sína hönd til kjarasamningsgerðar ofangreindra stéttarfélaga.
Lögð fram tillaga mannauðsstjóra að verkfallslista 2019 sem birtast skal í B deild Stjórnartíðanda 1. febrúar nk.
Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi lista.
Lagður fram lánasamningur vegna skuldbreytinga á lánum við Íslandsbanka hf.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi bókun:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka óverðtryggð lán hjá Íslandsbanka að andvirði 2.610.000.000- króna, sbr. framlagðan lánasamning. Andvirði lána verður ráðstafað til fullnaðargreiðslu lánasamninga hjá Íslandsbanka og er því einungis um endurfjármögnun/skuldbreytingu lána að ræða.
Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“
Lagt fram minnisblað um hækkun yfirdráttarheimildar um 200 millj. kr.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálsviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi bókun:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með uppfærðan samning um yfirdráttarlán við Íslandsbanka að fjárhæð 600 milljónir króna. Jafnaframt er samþykkt að hækka tímabundið, eða til 19. apríl 2019, yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka um 200 milljónir króna þannig að hún verði alls 800 milljónir króna. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast samningnum.“
Lagt fram boðsbréf frá Bærum um vinabæjarmót sem haldið verður í Bærum 23. til 25. maí 2019.
Andri Ómarsson verkefnastjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir að tveir frá meirihluta og einn frá minnihluta ásamt bæjarstjóra og tveggja embættismanna verði þátttakendur sveitarfélagsins á vinabæjarmótinu.
Tekið fyrir að nýju.
Ágústa Kristófersdóttir forstöðumaður Hafnarborgar og ritari ferða- og menningarmálanefndar og Andri Ómarsson verkefnastjóri mæta til fundarins.
Bæjarráð felur Ágústu Kristófersdóttur og Andra Ómarssyni að ræða við Leikfélag Hafnarfjarðar vegna óskar félagsins um nýtt húsnæði undir starfsemina.
Samningsmarkmið lög fram.
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir framlögð samningsmarkmið sveitarfélagsins í viðræðum við lóðarhafa á Hraunum-Vestur um uppbyggingu hverfisins og felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.
Lögð fram lóðarumsókn frá Arcus ehf um lóð í Koparhellu.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Arcus ehf. lóðinni Koparhella 5 og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
Lagður fram drög að endurnýjun lóðarleigusamnings ásamt minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir framlagðan endurnýjun á leigulóðarsamning og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Lóðarleigusamningur Lindarberg 1
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning við HS veitur og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
Lögð fram lóðarumsókn um fjölskylduhúsalóðina nr. 2 við Bjargsskarð. Umsækjendur eru Þorgils Arason, Sigurrós Auður Sveinsdóttir og Erlendur Halldór Durante,Þórey Ólöf Þorgilsdóttir.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni nr. 2 við Bjargskarð í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
Lögð fram umsókn PE pípulagna ehf., um tvíbýlishúsalóðina nr. 1 við Glimmerskarð
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni nr. 2 við Glimmerskarð í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
Tekið fyrir að nýju.
Lagt fram tilboð M3 Capital ehf f.h. óstofnaðs einkahlutfélags. Einkahlutafélagið er Bulls eye ehf. kt. 630516-1370, lögð hefur verið fram tilkynning til hlutafélagaskrár um breytingu á nafninu í Hraunskarð 2 ehf.
Tillaga að bókun:
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði M3 Capital ehf f.h. Bulls eye ehf., í fjöleignarhúsalóðina nr. 2 við Hraunskarð lóðina og úthluta lóðinni til Bulls eye ehf., kt. 630516-1370.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði M3 Capital ehf f.h. Hraunskarðs 2 ehf., í fjöleignarhúsalóðina nr. 2 við Hraunskarð og úthluta lóðinni til Hraunskarðs 2 ehf., kt. 630516-1370.
Lagt fram bréf frá starfshóp um endurskoðun kosningalaga dags. 19. des.sl.
Lögð fram fundargerð Kaplakrikahópsins frá 10.jan. sl.
Lagðar fram fundargerðir framkvæmdahóps St. Jó.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 9.janúar sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 10.janúar sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21.des. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 9.jan.sl.