Sýningaljós slf. sækir þann 08.08.2018 um breytingu vegna stækkunar á lóð samkvæmt teikningum Gísla G. Gunnarssonar dags. 03.08.2018.
Nýjar teikningar bárust 9.1.2019
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Mætt til fundar
- Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
- Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
- Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
- Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður
Ritari
- Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
-
A-hluti byggingarleyfa
-
1808058 – Hvaleyrarbraut 12, byggingarleyfi, breyting
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
-
1811231 – Lónsbraut 54, breyting á gluggum og stiga
Thorco ehf. sækir þann 14.11.2018 um leyfi til að breyta gluggum og stiga samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 26.4.2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
B-hluti skipulagserindi
-
1811170 – Suðurhella 8, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þann 21.11.2018 var samþykkt að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu við Suðurhellu 8 skv. 1.mgr. samþykktar um embættisagreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar. Breytingarnar voru grennarkynntar frá 28.11.2018-02.01.2019. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsfulltrúi samþykkir að deiliskipulagsbreyting sú sem grenndarkynnt hefur verið skuli lokið i samræmi við 2.mgr. 2.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar.
-
1901034 – Einhella 11, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu á byggingarreit
Fyrirspurn Eignataks ehf. dags. 03.01.2019 varðandi stækkun byggingarreits að Einhellu 11 samkvæmt tillögum Tvíhorfs arkitekta.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
C-hluti erindi endursend
-
1810226 – Íshella 7, reyndarteikningar á mhl 02.
Járn og Blikk ehf. leggur inn reyndarteikningar þann 19.10.2018 unnar í október 2018 af Hauki Ásgeirssyni. Breyting inni.
Nýjar teikningar dags.18.10.2018 bárust 02.01.2019.Frestað gögn ófullnægjandi.
-
18129678 – Hellubraut 5, byggingarleyfi
Gunnar Hjaltalín sækir 28.12.2018 um að breyta áður samþykktum teikningum vegna byggingu einbýlishúss samkvæmt teikningum Helga M. Hallgrímssonar dagsettar 20.12.2018.
Frestað gögn ófullnægjandi.
-
18129679 – Hellubraut 7, byggingarleyfi
Gunnar Hjaltalín sækir 28.12.2018 um að breyta áður samþykktum teikningum vegna byggingu einbýlishúss samkvæmt teikningum Helga M. Hallgrímssonar dagsettar 20.12.2018.
Frestað gögn ófullnægjandi.
-
18129632 – Hnoðravellir 5, fyrirspurn
Sigurður Karl Magnússon leggur 20.12.2018 inn fyrirspurn vegna girðingar 20 cm frá lóðarmörkum við bæjarland. Um er að ræða einfalda klædda girðingu c.a. 100 cm á hæð og 2,5 cm bil er á milli þjala. Girðingin er reist bakvið hleðsluvegg og er heildarhæð 170 cm.
Tekið er neikvætt í fyrirspurnina. Taka þarf af horni skjólveggjar við gestastæði. Einnig þarf að lækka skjólvegg við götu að Hnoðravöllum.
-