Þórður Þórarinsson
Þórður Þórarinsson tók við starfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar í maí 2026, eftir ráðningu bæjarstjórnar við upphaf nýs kjörtímabils.
Þórður er stjórnmálafræðingur að mennt og býr yfir víðtækri reynslu af stjórnsýslu, stefnumótun og rekstri. Áður en hann tók við starfi bæjarstjóra gegndi hann embætti framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins á árunum 2014–2025. Á þeim tíma stýrði hann starfsemi flokksins í gegnum fjórar alþingiskosningar, þrjár sveitarstjórnarkosningar og fjögur landsþing.
Þar áður starfaði Þórður í níu ár sem framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, samstarfsvettvangs þinga Íslands, Grænlands og Færeyja sem vinnur að eflingu samstarfs á vestnorræna svæðinu. Hann hefur jafnframt gegnt fjölmörgum trúnaðar- og forystustörfum á vettvangi stjórnmála- og æskulýðsstarfs. Starfsferill Þórðar einkennist af sterkri sýn, öflugri stjórnunarreynslu og djúpri þekkingu á opinberri stjórnsýslu. Hann hefur lagt ríka áherslu á samstarf, fagmennsku og þjónustu við samfélagið, bæði á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Þórður er fæddur árið 1967. Hann er kvæntur Mörtu Maríu Ástbjörnsdóttur sálfræðingi og eiga þau þrjá syni.
Bæjarstjórar í tímaröð frá 1946
| Tímabil | Nafn |
|---|---|
| 2026- | Þórður Þórarinsson |
| 2025–2026 | Valdimar Víðisson |
| 2018–2024 | Rósa Guðbjartsdóttir |
| 2014–2018 | Haraldur L. Haraldsson |
| 2012–2014 | Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir |
| 2010–2012 | Guðmundur Rúnar Árnason |
| 2002–2010 | Lúðvík Geirsson |
| 1998–2002 | Magnús Gunnarsson |
| 1995–1998 | Ingvar Viktorsson |
| 1994-1995 | Magnús Jón Árnason |
| 1986–1993 | Guðmundur Árni Stefánsson |
| 1979–1986 | Einar Ingi Halldórsson |
| 1966–1979 | Kristinn Ó. Guðmundsson |
| 1962–1966 | Hafsteinn Baldvinsson |
| 1954–1962 | Stefán Gunnlaugsson |
| 1949–1954 | Helgi Hannesson |
| 1948–1948 | Guðmundur Gissurarson (sat í tvo mánuði) |
| 1946–1948 | Eiríkur Pálsson |