Geitungarnir eru nýsköpunar- og starfsþjálfunar-miðstöð fyrir fólk með fötlun.
Aukin tækifæri fólks með fötlun á vinnumarkaði
Geitungarnir bjóða upp á nýsköpunar- og starfsþjálfun fólks með fötlun. Þar getur fólk fengið starfsreynslu gegnum atvinnuþjálfun, líka fólk með miklar stuðningsþarfir. Þjálfunin fer fram á almennum vinnumarkaði og vinnustaðirnir eru valdir út frá áhugasviði hvers og eins.
Þau sem hafa ekki áhuga á starfsþjálfun nýta daginn í félagslega þjálfun og önnur verkefni. Til dæmis er farið í sund, íþróttir, gönguferðir og margt annað þar sem starfsfólk og þátttakendur njóta samveru hvers annars.
Framsækið nýsköpunar-starf fer fram í Geitungunum með sérhæfðum leiðbeinendum.
Bæði er unnið í verkefnum í hópum og sem einstaklingar.
Dæmi um verkefni:
- keramik
- smíði
- saumavinna
- myndlist
- rusl-bar
Unnið er markvisst að valdeflingu hvers og eins með fræðslu, vinnu og virkni. Þjónustan er einstaklings-miðuð út frá getu og áhugasviði hvers og eins. Unnið er eftir einstaklings-áætlun þar sem markmið eru skýr og raunsæ.
Geitungarnir byrjuðu árið 2015 sem tilraunaverkefni til eins árs og síðan þá hefur mikilvægi starfseminnar sýnt sig og sannað.
Þátttakendur ráða för
Verkefnið er unnið í samvinnu við þau sem taka þátt í starfinu. Þau völdu nafn á vinnustaðinn og tóku virkan þátt í að móta vinnu-umhverfið. Hugmyndir að vinnustöðum og val á fyrirtækjum og stofnunum fyrir starfsþjálfun koma frá þeim sem eru í Geitungunum. Einnig koma áherslur í fræðslu og hugmyndir að nýjum skapandi verkefnum frá þörfum og óskum þeirra.
Hvar er sótt um?
Sótt er um í Geitungana gegnum vefsíðu Vinnumálastofnunar.

Verslun Geitunganna
Geitungarnir eru með verslun í Húsinu að Suðurgötu 14. Þar eru seldar vörur sem Geitungar hafa framleitt, meðal annars með efnislega endurnýtingu að leiðarljósi. Búðin er opin frá 8–17 alla virka daga.