Andrés Þór Gunnlaugsson, gítarleikari, Karl Olgeirsson, píanóleikari og Jón Rafnsson, bassaleikari, leika jólalög og sálma sem fylgt hafa íslensku jólahaldi í gegn um áratugina á Hátíðarnótt í Fríkirjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 13.desember kl.20.00. Aðgangur er ókeypis og tónleikarnir eru um klukkustundar langir.
Geisladiskurinn „Hátíðarnótt“ kom út fyrir jólin 2015 og síðan þá hafa þeir félagar alltaf haldið nokkra tónleika á aðventunni og leika þeir diskinn í heild sinni.
Útsetningarnar eru í rólegri kantinum og stemmningin sem myndast er bæði þægileg og afslappandi, sem áheyrendur tala gjarnan um og eru ánægðir með, – gott að koma og bara hlusta og íhuga og njóta.
Sjá nánar á https://jrmusic.is/jr-verkefni/hatidarnott/
Hátíðarnótt á Spotify https://open.spotify.com/album/5v1v35idmesnKlQtigEQua
Tónleikanir eru styrktir af Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar og Tónlistarsjóði. Aðgangur er ókeypis.