Áhrif orðaforða á félagsfærni og samskipti
Leik og grunnskólarnir í Valla/Skarðshlíðarhverfi hafa tekið höndum saman um eflingu málþroska og félagsfærni og bjóða foreldrum 4-7 ára barna (2 elstu árgangar leikskólans og börn í 1. og 2. bekk grunnskóla) í hverfinu til fræðslufunda um þessi mál.
Fundirnir verða haldnir:
- Miðvikudaginn 8. mars kl. 8:15 – 9:15í fyrirlestrasal Skarðshlíðarskóla
- Fimmtudaginn 9. mars kl. 15:00 – 16:00í fyrirlestrasal Hraunvallaskóla
Foreldrum er frjálst að mæta á hvorn fundinn sem er, óháð því í hvað leik- eða grunnskóla barnið er.
