Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 30. apríl. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Svo er náttúrulega tilvalið að plokka alla daga ársins!
Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til þátttöku í STÓRA PLOKKDEGINUM!
Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu.
Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.
Afhverju er það að plokka frábær hugmynd?
- frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
- einstaklingsmiðað
- hver á sínum hraða
- hver ræður sínum tíma
- frábært fyrir umhverfið
- fegrar nærsamfélagið
- öðrum góð fyrirmynd
Nánari upplýsingar um Stóra plokkdaginn á Facebook
PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI
- Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
- Stofna viðburð í eigin hverfi eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
- Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
- Klæða sig eftir aðstæðum.
- Senda mynd og upplýsingar í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.