Mótum framtíðina saman – samtal um Sjálfbært Ísland
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður til opinna samráðsfunda um landið um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundunum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.
Fyrsti fundurinn í fundaröð forsætisráðherra um Sjálfbært Ísland er á Akureyri nk. mánudag 17. apríl í Hofi og hefst klukkan 16. Næsti fundur verður í Salnum í Kópavogi 18. apríl kl. 16 og síðan verður farið í Borgarnes 24. apríl, á Selfoss 25. apríl, á Höfn í Hornafirði og Egisstöðum 26. apríl og á Ísafirði 27. apríl. Sérstakur fjarfundur fyrir allt landið verður haldinn 4. maí kl. 14.
Fundur í Salnum hefst kl. 16 og stendur til 17:30
Fundarstjóri er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi
Dagskrá:
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Opnunarerindi
- Halla Hrund Logadóttir, Orkumálastjóri
- Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður stofnunnar Sæmundar fróða
- Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi Sjálfbærs Íslands.
Síðan verður hópnum skipt niður á umræðuborð 6-8 manns per borð með umræðustjóra og ritara á hverju borði. Hóparnir fá síðan nokkrar lykilspurniningar til að ræða um, hvernig við gerum Ísland Sjálfbærara.
Skráning er inni á www.sjalfbaertisland.is
Hér er stikla um fundinn inn á FB síðu forsætisráðuneytisins sem má deila ef menn vilja. https://www.facebook.com/forsaetisraduneytid
Nánari upplýsingar gefur Elín Hirst, 899-9350.