Bjartir dagar hefjast á því að þriðjubekkingar grunnskólanna syngja inn sumarið á Thorsplani undir stjórn Guðrúnar Árnýar og Lalli töframaður töfrar og grínast eins og honum einum er lagið. Þá skreyta leikskólabörn fyrirtæki, verslanir og stofnanir í Hafnarfirði með list sinni um allan bæ.
| Leikskóli | Stofnun |
| Arnarberg | Fjörður |
| Álfaberg | Súfistinn |
| Álfasteinn | Íshúsið/Fjörður heilsugæsla |
| Bjarkalundur | Ásvallalaug |
| Hamravellir | Ásvallalaug |
| Hjalli | Þjónustuver Hfj. |
| Hlíðarberg | Íshúsið/Tónlistarskólinn |
| Hlíðarendi | Ísbúð Vesturbæjar við Strandgötu |
| Hraunvallaskóli | Haukahúsið |
| Hvammur | Suðurbæjarlaug |
| Hörðuvellir | Lækjargata 34: Stoðtækni, Skipt í miðju hársnyrtistofa, Dýralæknamiðstöðin |
| Norðurberg | Hrafnista |
| Smáralundur | Bókasafnið |
| Stekkjarás | Heilsugæslan Sólvangi |
| Skarðshlíðarleikskóli | Hafrannsóknastofnun |
| Tjarnarás | Bókasafnið |
| Vesturkot | Hraunkot hjá Golfklúbbnum Keili |
| Víðivellir | Nettó |