Komdu með í göngu!
Einar Skúlason, hjá Wappinu, leiðir u.þ.b. 5 km göngu þar sem Undirhlíðar verða gengnar, að ofan og neðan.
Gengið verður frá bílastæðinu við Kaldársel.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!
Menningar- og heilsugöngur 2023
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.
Komdu út að ganga í sumar!