Álfaganga
Silja Gunnarsdóttir og Sigurbjörg Karlsdóttir leiða göngu um álfaslóðir og segir sögu álfa, dverga og huldufólks á leiðinni.
Hafnarfjörður er þekktur fyrir að hafa álfa, dverga og huldufólk, sem býr í steinum og klettum víðsvegar um bæinn í samlyndi við menn og dýr. Gangan hefst við Byggðasafn Hafnarfjarðar, klukkan 20.00. Gengið verður um álfaslóðir Hafnarfjarðar og saga álfa, dverga og huldufólks sögð á leiðinni. Gangan endar í Hellisgerði sem er eitt mesta þéttbýli Huldufólks á Íslandi. Áætluð tímalengd er 1 klst.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!
Menningar- og heilsugöngur 2023
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.