Komdu með í göngu!
Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, leiðir göngu um rósa- og trjásafnið í Höfðaskógi. Lagt verður af stað frá Þöll við Kaldárselsveg kl.17. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!
Menningar- og heilsugöngur 2023
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.
Komdu út að ganga í sumar!