„Svalur andblær“ er heiti sýningarinar eftir Díönu Von Ancken “ Dijanah”
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudagskvöldið 13.júlí n.k. frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!
Sýningin byggir á áhrifum mismunandi lita og litasamsetninga á tilfiningalífið. Áhrif litana opna fyrir vitrænni skynjun bæði huglægri og fagurfræðilegri jafnvel líkamlegri. Upplifunin getur verið þverfagleg og skilið eftir sig vonandi, ljúfa sælu og hamingju.
Diana stundaði nám á listabraut á unglingsárum á Vestoppland folkehogskole og þar opnaðist ástríðan fyrir myndlist. Í gegnum árin hefur hún farið á fjölda mörg námskeið í olíu, akrýl og vatnslitum ásamt teikningu og leirlist. Myndirnar á þessari sýningu eru gerðar með bleki. Diana er blues söngkona með hljómsveitinni Rætur.
Diana tekur vel á móti gestum og opnunartímar eru eftirfarandi:
fimmtudagur 18:00-20:00
föstudagur 13:00-18:00
laugardagur 12:00-17:00
sunnudagur 14:00-17:00
Sjá viðburð Svalur andblær | Facebook
Viðburðurinn er styrktur af menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.