Aðdáendur söngkonunnar Kate Bush koma víða um heim saman til að fagna „The Most Wuthering Heights Day Ever“ og dansa við myndband sem Kate Bush gerði árið 1978 við lagið Wuthering Heights.
Af þessu tilefni ætla íslenskir aðdáendur söngkonunnar að hittast við Hvaleyrarvatn og dansa klukkan 14 laugardaginn 29. júlí. Í framhaldi af því verður hlustað áfram á Kate Bush lög. Allir eru hvattir til að mæta í rauðu, með blóm í hárinu og með rauðan varalit. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með „picnic“ körfu, tepp og regn- eða sólhlíf.
Að viðburðinum stendur Áslaug Jónsdóttir.
Aðgangur er ókeypis og þátttakendur eru hvattir til að ganga vel um svæðið. Nánari lýsing á staðsetningu kemur síðar.