Hafnarfjarðarbær tekur þátt í Gleðigöngunni 2023 – gakktu með!

Laugardaginn 12. ágúst fer fram hin árlega Gleðiganga Hinsegin daga og mun Hafnarfjarðarbær taka þátt í göngunni í ár. Hinsegin hittingar í Hafnarfirði og jafningjafræðsla Vinnuskóla Hafnarfjarðar standa að framkvæmdinni og hvetja íbúa, starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar og öll áhugasöm til að fjölmenna og taka þátt í göngunni undir merkjum Hafnarfjarðarbæjar.

Mæting í gönguna kl. 12:30. Gangan hefst kl. 14

Gengið verður frá Tækniskólanum á Skólavörðuholti kl. 14 en mæting fyrir þau sem vilja ganga í hópi Hafnarfjarðarbæjar kl. 12:30. Á staðnum verða fánar og skraut í takmörkuðu magni þannig að fyrstir koma, fyrstir fá!

Sjáumst!

Ábendingagátt