Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 14.09.23 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun iðnaðarsvæðisins I4 inn á óbyggt svæði til austurs vegna stækkunar lóðarinnar Álhellu 1. Kynningartíminn er til 17.10.23 og má nálgast skipulagslýsingu á vef skipulagsgáttar Skipulagsgáttin (skipulagsgatt.is). Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgátt, á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega á:
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar
Norðurhella 2
221 Hafnarfjörður