Gjöf til nýrra Hafnfirðinga
Táknræn gjöf til nýfæddra Hafnfirðinga
Við bjóðum nýfædda Hafnfirðinga hjartanlega velkomna í bæinn!
Hafnarfjarðarbær býður nýbökuðum foreldrum að sækja gjöf til nýrra Hafnfirðinga í barnadeild Bókasafns Hafnarfjarðar sem er fullkominn staður fyrir nýbakaða foreldra fyrir lestur, fræðslu, slökun, spjall og samveru. Gjöfin er liður í því að efla Hafnarfjörð enn frekar sem fjölskylduvænt samfélag og bjóða nýfædda Hafnfirðinga velkomna í heiminn með formlegum hætti. Foreldrar fá sent póstkort frá bænum fljótt eftir fæðingu barns sem þeir þurfa að hafa meðferðis þegar gjöfin er sótt.
Hjartanlega velkomin!
Innihald gjafar
Gjöfin inniheldur fatnað fyrir barnið, krúttbangsa og tvær bækur, eina fyrir foreldra og aðra fyrir barnið. Bækurnar eru „Fyrstu 1000 dagarnir“ eftir Sæunni Kjartansdóttur og Mimi bók til að lesa fyrir barnið. Mimi bækurnar eru fjórar og mismunandi hvaða Mimi bók fylgir gjöfinni. Barnafötin koma frá íslenska fyrirtækinu Móa sem hefur það að markmiði að hanna og framleiða flott og frumleg föt fyrir öflug börn. Við ákvörðun á innihaldi gjafar voru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi, notagildi og kynhlutleysi. Innihald gjafar getur tekið breytingum en framantalið verður ætíð leiðarljós í vali á vörum. Rétt er að taka fram að ekki er hægt að skila innihaldi gjafar.
Mói er íslenskt fatamerki sem hefur það að markmiði að skapa flott og frumleg föt fyrir öflug börn. Fatnaðurinn er hannaður með frjálsan leik og mikla hreyfingu í huga og að gera heiminn betri með sjálfbærni að leiðarljósi. Það gerir fyrirtækið m.a. með því að tryggja að framleiðslan sé vottuð, með öðrum orðum að hún sé bæði samfélagslega ábyrg og lífræn. Fatagjöf til barnsins inniheldur: Heilgalla, húfu, smekk og sokka.
Rannsóknir sýna að fyrstu 1.000 dagarnir í lífi barns – frá getnaði til tveggja ára aldurs – hafa afgerandi áhrif á framtíðarheilbrigði þess. Ástrík og næm samskipti á þessum tíma leggja mikilvægan grunn að þroska barnsins sem vitsmuna-, tilfinninga- og félagsveru. Fyrstu 1000 dagarnir er aðgengileg handbók fyrir foreldra sem byggir á tengslakenningum, nýjustu rannsóknum í taugavísindum og sálgreiningu.
Mimi bækurnar fjalla um söguhetjuna Mimi, sem segir stuttar sögur þar sem notast er við einföld tákn með tali til að laða fram orðmyndun barna. Tjáskiptaaðferðin sem Mimi notast við býr yfir þeirri sérstöðu að táknin eru aðlöguð að þörfum og hugarheimi barna. Táknin eru byggð á einföldum og náttúrulegum hreyfitáknum sem síðan eru notuð á markvissan hátt til stuðnings töluðu máli. Þegar orðamyndun er náð víkja táknrænu samskiptin fyrir orðanotkun. Mimi Saga gefur út fræðsluefni í formi bóka og rafrænna námskeiða sem nýtist jafnt börnum, aðstandendum barna sem og fagfólki.
Krúttbangsinn er hvít kanína frá merkinu Jellycat. Kanínan er keypt hjá heildversluninni Skjaldbökunni sem selur fjölbreyttar barnavörur sem unnar eru úr skaðlausum og náttúrulegum efnum. Jellycat tuskudýr voru fyrst framleidd í London árið 1999 og er rík áhersla lögð á vandaða framleiðslu og gæðamikinn efnivið. Vörurnar eru vottaðar með evrópska öryggisstaðlinum EN71 parts 1, 2 & 3.
Mikilvægar upplýsingar
Markmið ung- og smábarnaverndar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna og fylgst með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs. Ung- og smábarnavernd stendur öllum foreldrum til boða þeim að kostnaðarlausu. Þjónustan er hverfaskipt og leita foreldrar til þeirrar heilsugæslustöðvar sem þjónar þeirra hverfi. Gott er að láta ungbarnaverndina á heilsugæslustöðinni þinni vita þegar fjölskyldan er komin heim. Í Heilsuveru er mikið af hjálplegu efni fyrir foreldra um þroska, heilsu og umönnun
Fjölskyldubærinn Hafnarfjörður
Bókasafn Hafnarfjarðar býður upp á fjölþætta þjónustu og ýmsa aðstöðu til lesturs og námskeiða. Einnig netkaffi með aðgangi að prentara, þráðlausu neti og ljósritun. Foreldramorgnar eru haldnir í fjölnotasal safnsins á mánudögum kl. 10 – 12 yfir vetrartímann. Foreldramorgnarnir eru hugsaðir sem notaleg samverustund og vettvangur fyrir foreldra til að koma saman með börn sín og spjalla yfir kaffi og meðlæti.
Reglulega er boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barneignum og uppeldi auk þess sem bókasafnið geymir mikið úrval af bókum um börn og uppeldi. Við hvetjum nýbakaða foreldra einnig til að kynna sér starfsemi Byggðasafns Hafnarfjarðar og Hafnarborg. Frítt er á öll söfn Hafnarfjarðarbæjar.
Á Kortavef Hafnarfjarðar er hægt að sækja hafsjó af upplýsingum varðandi starfsemi og þjónustu bæjarins. Þar má til dæmis nálgast upplýsingar um leikvelli, boltavelli og ærslabelgi. Kortavefurinn er uppfærður daglega og tekur ætíð mið af nýjustu upplýsingum.
Í umhverfi Hafnarfjarðar eru fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir sem henta vel til útivistar fyrir alla fjölskylduna. Leiðirnar eru hluti af samgöngukerfi bæjarins sem hefur stækkað töluvert á umliðnum árum. Aukin áhersla hefur verið á að bæta aðgengi gangandi fólks, hlaupandi og hjólreiðafólks.
Hafnarfjörður er fallegur bær frá náttúrunnar hendi. Bærinn er byggður í skeifu fyrir botni fjarðarins en í gegnum bæinn rennur Hamarskotslækur til sjávar. Mikinn fjölda náttúrufyrirbrigða og áhugaverðra staða er að finna í landi Hafnarfjarðar.
Hafnarfjarðarbær greiðir mánaðarlega í ellefu mánuði á ári heimgreiðslur til foreldra og forráðamanna barna sem ekki eru í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 12 mánaða aldri og þar til barn verður 30 mánaða. Greiðslur falla niður ef barn hefur nám í leikskóla eða fer til dagforeldris fyrir þann tíma. Ekki er greitt fyrir júlí. Mánaðarleg greiðsla miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir 8 klst. vistun.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi aðilar og hefur Hafnarfjarðarbær umsjón með og sinnir lögbundnu eftirliti með starfsemi þeirra. Foreldrar hafa sjálfir samband við dagforeldra þegar leitað er eftir plássi fyrir barnið. Mælt er með að foreldrar tali við tvo eða fleiri dagforeldra áður en ákvörðun um vistun er tekin. Dagforeldrar sjá sjálfir um innritun barna. Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir vistun hjá dagforeldrum utan Hafnarfjarðar, kjósi foreldrar að fara með börn sín til dagforeldris utan Hafnarfjarðar.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og upphaf skólagöngu barna. Í gildi eru innritunarreglur í leikskóla Hafnarfjarðarbæjar sem miða við að börn fá leikskólapláss allt frá 15 mánaða aldri (fer eftir fæðingarmánuði). Aðalúthlutun leikskólavistar fer fram að vori ár hvert vegna leikskólarýma sem losna þegar elsti árgangur byrjar í grunnskóla. Einnig er innritað í febrúar eftir því sem pláss leyfa. Aðrar úthlutanir fara fram jöfnum höndum allt skólaárið, þegar leikskólarými losna vegna flutninga eða annarra ástæðna.
Í Hafnarfirði eru 3 sundlaugar sem allar hafa sína sérstöðu og sjarma. Þannig einkennir Sundhöll Hafnarfjarðar gömul saga og rólegt andrúmsloft, Ásvallalaug fjölskylduvænt umhverfi og heitur salur fyrir yngri börnin og Suðurbæjarlaug fallegt og gott útisvæði og útilaug. Frítt er í sund fyrir börn og ungmenni 17 ára og yngri.
Kraftur og gróska er í menningar- og listalífinu í Hafnarfirði sem hefur meðal annars endurspeglast í fjölda árlegra og vel sóttra viðburða. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er að finna dagatal yfir alla þá viðburði sem Hafnarfjarðarbær kemur að með einhverjum hætti og jafnvel fleiri til en opið er fyrir skráningar á viðburðadagatal bæjarins.
Frístundastyrkur Hafnarfjarðarbæjar er hugsaður fyrir öll börn og ungmenni á aldrinum 6–18 ára sem skráð eru í virkt íþrótta- og tómstundastarf. Um er að ræða mánaðarlegan styrk til lækkunar á þátttökugjöldum. Við rafræna skráningu hjá íþrótta- og tómstundafélögum, innan eða utan Hafnarfjarðar, geta foreldrar og forráðamenn valið að nýta styrkinn og draga hann frá þátttökugjöldum.
Rétturinn til félagslegs öryggis felur í sér að til staðar sé skilvirkt kerfi sem tryggir að allir einstaklingar fái grundvallarþörfum sínum mætt. Hafnarfjarðarbær vinnur að því að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúa og veitir fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Hlutverk barnaverndar er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Barnavernd leitast við að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.