Verum bleik – fyrir okkur öll

Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar og hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár. Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að vera bleik fyrir okkur öll og stefnan nú þegar tekin á að Bleiki dagurinn í ár verði sá allra bleikasti hingað til, í takt við átakið. Bleiki dagurinn er haldinn föstudaginn 20. október og skammdegið líst upp með bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni samstöðuna í samfélaginu. Krabbameinsfélaginu er ekkert óviðkomandi þegar kemur að krabbameinum. Félagið vinnur á fjölbreyttan hátt að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa og bæta lífsgæði þeirra sem greinast og aðstandenda þeirra.

Klæðum samfélagið í bleikan búning í október

Árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, stendur yfir allan október. Átakið er tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að mikilvægi samstöðunnar og bleika litarins sem tákns um hana. Krabbamein kvenna snertir landsmenn alla einhvern tímann á lífsleiðinni og mikilvægt að leggjast á eitt í baráttunni og sýna samstöðu í verki með málstaðnum. Sýnilegsamtaða getur flutt fjöll og breytt öllu fyrir þau sem glíma við krabbamein og aðstandendur þeirra. Fánar Bleiku slaufunnar prýða fánastangir sveitarfélagsins við Byggðasafn Hafnarfjarðar.

Styrkur og stuðningur við átakið gerir félaginu kleift að:

  • styðja fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra með ókeypis ráðgjöf hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.
  • styrkja íslenskar krabbameinsrannsóknir sem snúa meðal annars að orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
  • sinna ýmiss konar fræðslu, forvarnarstarfi, námskeiðshaldi og fleiru sem miðar að því að draga úr líkum á krabbameinum og bæta líf fólks með krabbamein.
  • sinna hagsmunagæslu og beita sér fyrir bættri aðstöðu fyrir fólk með krabbamein.

Verum bleik – fyrir okkur öll

Tilkynning á vef Krabbameinsfélagsins

Ábendingagátt