Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg opna dyr sínar fram á kvöld og bjóða upp á skemmtilega dagskrá á Safnanótt föstudaginn 2. febrúar frá kl. 18-22.
Frítt er inn á alla viðburði á Vetrarhátíð.
Bókasafn Hafnarfjarðar
- Kl. 18:00 – Barnatónleikar með Mæju litlu Jarðarberi.
- Kl. 18:00-21:00 – Galdratáknasmiðja með Otiliu Martin.
- Kynningar á starfi safnsins, hljóðsaga, opið í djammhorninu, kynning á tækjakosti.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
- Kl. 18-22 – Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð opin.
- Kl. 18-22 – Ratleikur fyrir börn.
- Kl. 18-22 – Annríki sýnir baðstofuverk í Sívertsens-húsi.
- Kl. 19:30 – Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, flytur fyrirlesturinn „Máninn og myrkrið í íslenskum þjóðsögum“.
- Kl. 20:45 – Listahópurinn Klassík flytur íslenska og erlenda tónlist.
Hafnarborg
- Kl. 18:00-22:00 – yfirstandandi sýningar: Flæðarmál eftir Jónínu Guðnadóttur og Vísar eftir Þór Sigurþórsson.
- Kl. 18:00 – Síðdegistónar á Safnanótt: Tríó Halla Guðmunds – Tangó fyrir einn.
- Kl. 19:30 – Nidra-hugleiðsla, í tengslum við sýningu Þórs Sigurþórssonar, Vísa, verður boðið upp á leidda hugleiðslu með jógakennara þar sem hugað verður að jarðtengingu, tima og innri ró. Viðburðurinn hentar gestum á öllum aldri.
- Kl. 20:30 – Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, leiðir gesti um yfirstandandi sýningar, Flæðarmál og Vísa.