Opið hús 5. september
HEILSA – SAMFÉLAG – SKÖPUN
Hinn 5. september verður opið hús í Lífsgæðasetrinu frá kl. 16:00-18:00, fyrir vini og velunnara og þér er boðið.
Fjölbreytt dagskrá verður í húsinu þar sem samtök og fagaðilar sem eru í húsinu kynna starfsemi sína og þjónustu. Á dagskrá eru stærri og styttri erindi í sölum hússins og rýmum hvers og eins.
Í lok dags gefst fólki tækifæri til að ganga um og skoða þetta fallega sögufræga hús sem hlotið hefur endurnýjun lífdaga.
Sjáumst!