Risamarkaður GETA með gefins fatnaði og hlutum fyrir flóttafólk

Þetta er í þriðja sinn sem GETA – hjálparsamtök standa fyrir þessum góðgerðarviðburði sem hefur reynst gríðarlega mikilvæg leið til að koma fatnaði og hlutum frá nærsamfélaginu beint í hendur flóttafólks. Fyrirkomulagið er þannig að við komuna fá gestirnir ákveðinn fjölda miða sem þeir geta verslað fyrir. Þannig getur flóttafólk valið hluti og verslað það sem þau þurfa á að halda af virðingu og með reisn á sama tíma og þau finna fyrir hlýhug og stuðningi frá samfélaginu.

Vaxandi vinsældir milli ára

Árið 2022 voru gestir markaðarins 200 manns, en árið 2023 tvöfaldaðist fjöldi þeirra í 400 manns. Við gerum ráð fyrir að minnsta kosti jafn miklum fjölda í ár, ef ekki meiri. Það krefst mikillar vinnu að útfæra slíkt verkefni vel, en að því koma að minnsta kosti 30 sjálfboðaliðar auk fastra starfsmanna GETU – hjálparsamtaka.

  • Dagsetning: 26. október 2024
  • Staðsetning: Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, Strandgata 49, 220 Hafnarfjörður
  • Áætlaður fjöldi gesta: 400+

Söfnunin 

Söfnun hluta og fatnaðar hefst fimmtudaginn 24. október kl. 19.00 og munu sjálfboðaliðar standa vaktina það kvöld og allan daginn á eftir við að taka á móti og flokka hluti. Bæði einstaklingar og fyrirtæki geta gefið hluti á markaðinn. Óskað er eftir vel með förnum notuðum hlutum jafnt sem nýjum. Meðal þess sem boðið verður upp á er fatnaður og skór á allan aldur, snyrtivörur, lítil búsáhöld og rafmagnstæki, sem og aðrir smáir hlutir til heimilisins.

Facebook viðburðir 

Markaðurinn (markhópur hælisleitendur og flóttafólk)

Söfnunin (markhópur einstaklingar og fyrirtæki í nærumhverfinu)

Heimasíða GETU – hjálparsamtaka

https://getahjalparsamtok.com/

Facebook síða GETU – hjálparsamtaka

GETA – Hjálparsamtök

Nánari upplýsingar: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri GETU hjálparsamtaka, s. 693-5979, getahjalparsamtok@gmail.com

Ábendingagátt