Hellisgerði er skrúðgarður Hafnarfjarðar

Hundrað ára Hellisgerði

Sannkallað jólaævintýraland í Hellisgerði, þessum aldargamla og gullfallega lystigarði í miðbæ Hafnarfjarðar. Við inngang frá Reykjavíkurvegi tekur fallegt rautt jólahjarta á móti gestum og gangandi og síðan tekur við ævintýraveröld ljósa og lystisemda. Ljósaseríur og ljósafígúrur gleðja augað og andann. Mikið af fólki leggur leið sína um garðinn á göngu sinni um jólabæinn auk þess sem sjá má fjölskyldur í nestisferð með kakó og jólakökur, börn við létt hraunklifur og hellaskoðun og skautandi á tjörninni sem liggur í botni garðsins. Einhverjir hafa verið í ævintýraferð og í leit að álfum og huldufólki enda segir sagan að þarna búi mikill fjöldi álfa og huldufólks.

Helliskaffi í Oddrúnarbæ

Það verður nóg um að vera í Helliskaffi í aðdraganda jóla. Fram til kl.17 er hægt að kíkja við gróðurhúsin, fá sér heitt súkkulaði og njóta lítils og létts matseðils. Frá kl. 18 tekur jólaseðill hússins við, borðapöntun nauðsynleg. Nánar um Helliskaffi hér.

Opnunartími Helliskaffi:

  • Mánudagar og þriðjudagar: Lokað
  • Miðvikudagar: 11:00 – 21:00
  • Fimmtudagar: 11:00 – 21:00
  • Föstudagar: 11:00 – 23:00
  • Laugardagar: 11:00 – 23:00
  • Sunnudagar: 11:00 – 18:00

 

Ábendingagátt