Tökum samtalið
Fimmtudaginn 28. nóvember 2024 verður haldinn opinn fræðslufundur fyrir öll áhugasöm á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, mennta- og barnamálaráðuneytisins og Heimilis og skóla um verndandi þætti í lífi barna og ungmenna, samfélagsmiðla og samstarf heimila og skóla. Fundarstjóri er Margrét Gauja Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti. Fundinum verður streymt milli klukkan 13 og 14 fimmtudaginn 28. nóvember.
#tokumsamtalid
Í lok fundar verða umræður þar sem þátttakendur geta sent inn spurningar í gegnum slido.com: #tokumsamtalið. Öll erindin miða að því að gefa foreldrum og forsjárfólki innsýn og verkfæri sem mótvægi við þau neikvæðu samfélagslegu áhrif sem steðja að í lífi barna og ungmenna.
Haldin verða þrjú erindi:
- Samfélagsmiðlar og hvað skal varast þar – Kári Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg
- Samstarf foreldra gegn ofbeldi – Sigurður Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla
- Líðan og félagstengsl barna og unglinga: Hlutverk foreldra – Sigrún Daníelsdóttir, sérfræðingur hjá Embætti landlæknis, kynnir nýjustu rannsóknir um verndandi þætti í lífi barna og ungmenna