Jólin 2024 hjá akstursþjónustu Hafnarfjarðar
Jólahátíðin færist nær og eru notendur akstursþjónustu Hafnarfjarðar hvattir til að huga að pöntunum á akstursþjónustunni tímanlega. Helst með að minnsta kosti viku fyrirvara til að tryggja farsælan og góða flutning á milli staða á óskatímanum. Aðfangadag jóla, á jóladag, gamlársdag og nýársdag er starfstími og aksturstími akstursþjónustu frá kl. 10 – 22. Enginn akstur er í boði fyrir eða eftir þann tíma þessa dag.
Notendur eru hvattir til að panta tímanlega
Jólahátíðin færist nær og eru notendur akstursþjónustu Hafnarfjarðar hvattir til að huga að pöntunum á akstursþjónustunni tímanlega. Helst með að minnsta kosti viku fyrirvara til að tryggja farsælan og góða flutning á milli staða á óskatímanum.
Starfstími akstursþjónustunnar um jól og áramót
Aðfangadag jóla, á jóladag, gamlársdag og nýársdag er starfstími og aksturstími akstursþjónustu frá kl. 10 – 22. Enginn akstur er í boði fyrir eða eftir þann tíma þessa dag. Þeim vinsamlegu tilmælum er einnig beint til þjónustunotenda að panta ekki akstursþjónustu milli kl. 17-20 á aðfangadag og gamlársdag þannig að sem flestir fái tækifæri til að njóta matar og samveru með öðrum. Almennt er reglan sú að pöntun ferða, sem áformaðar eru á stórhátíðardögum, eiga að hafa borist þjónustuveitanda fyrir kl. 16 síðasta virka dag fyrir stórhátíðisdaga.
Tengiliðaupplýsingar
- Pöntunarsími Akstursþjónustu Hafnarfjarðar er 515-2720
- Netfang Akstursþjónustu Hafnarfjarðar er: ferd@teitur.is